en ekki upp á fjallsins brún, bara upp að steini.
Ég hafið það af að ganga alveg upp að steini í kvöld, Sjúkraliðinn var að kenna og ég gat ómögulega dregið það um viku í viðbót að klára þenna áfanga. En þó Sjúkraliðann minn vantaði var óvenjugóð mæting. Eldri Píparinn dreif sig í Esjugöngu með mér, honum fannst þetta frekar ómerkileg fjallganga miðað við hitt og þetta á Lónsöræfum og annarstaðar þar sem hann hefur verið að elta hreindýr austur á landi en við gerðum honum ljóst að maður talar ekki niður til Esjunnar í allri sinni dýrð enda er hún meira háslétta en fjall. Skálavörðurinn birtist á bílaplaninu eins og skollinn úr sauðaleggnum og spilafélagi okkar Sjúkraliðans úr Hornstrandaferð mætti rétt á eftir. Göngugarpurinn kom að sjálfsögðu með mér úr vinnunni svo þarna var bara orðinn gönguhópur, mun stærri en þessi venjulegi tveggja manna gönguhópur okkar.
Ég hef sagt öllum sem heyra vilja að við göngum frá bílastæðunum við Esjurætur klukkan stundvíslega 17:30 á miðvikudögum og ótrúlegt en satt þá hafa einhverjir hlustað á mig. Það gerist ekki oft skal ég segja ykkur.
Eftir viku á að fara aftur upp að steini og alla leið upp miðvikudaginn eftir páska.
Ef veður og færð leyfir sko.
Ég held að mér sé alveg óhætt að klappa sjálfir mér á öxlina fyrir að hafa staðið við það að labba þetta einu sinni í viku, með örfáum undantekningum, og þrekið og úthaldið er miklu betra en það var í árslok.
Betur má ef duga skal og þegar vinnan minnkar fer ég að fara amk. tvisvar, helst þrisvar í viku og á eftir Þverfellshorninu verður það Kerhólakamburinn.
28. mars 2007
27. mars 2007
Veðrið hér og þar ..
Í gær var komið vor og í morgun snjór og hálka. Ég nennti ekki að fara út og setja driflokurnar á og mér er sagt að án þeirra sé EKKERT gagn í að hafa bílinn í fjórhjóladrifinu og þess vegna skautaði ég framhjá innkeyrslunni í vinnuna í morgun.
Það er ekki hægt að kvarta undan einhæfu veðri á Íslandi og það hlýtur að vera bara jákvætt.
Veðrið í Kákasuslöndunum er aftur á móti tíðindalaust og voðalega lítið gaman að fylgjast með veðurmælingunum sem ég linkaði inn á. Þar hefur verið 9 til 11 stiga hiti frá því ég fann veðurstofurnar á svæðunum, í mestu hitasveiflunum hefur hitinn farið niður í 8 stig samkvæmt þeim mæli sem ég lít oftast á.
Þegar ég sé svona óspennandi veðurlýsingar verð ég voða glöð með íslenskt veður, ég er svo mikill spennufíkill.
Ég ætla í Esjugöngu á morgun og svo á trébátafyrirlestur annað kvöld.

26. mars 2007
Vor
Það er vor í lofti og ég er búin að segja upp aukavinnunni!
Það á eftir að koma í ljós hvenær ég losna þaðan og hver tekur við en ég er strax byrjuð að hlakka til að eiga frídaga án þess að þurfa að vinna tvöfalt næstu vikur á eftir til að vinna af mér fríin.
Reyndar fannst mér þetta vera vandamál í aðalvinnunni á síðasta sumri, ég var alltaf að vinna eins og skepna til að klára upp áður en ég færi í frí. Það er samt skárra að þurfa þess bara í einni vinnu, ekki tveimur.
Svo vonandi verður apríl bara í fullri aukavinnu og maí og júní í hálfri til að koma einhverjum inn í starfið.
Og var ég búin að minnast á það? Það er vor í lofti, sól og blíða og kannski hef ég tíma fyrir garðvinnu þetta árið!
Lífið getur verið ljúft á svona dögum og svo eru ekki nema 33 dagar í flugið langa til Baku.

24. mars 2007
Föstudagskvöld tuttugasti og eitthvað
Er orðin dagavilt og hef ekki hugmynd um hvaða mánaðardagur er í dag. Það er ágætt.
Ég ætlaði að vinna í dag og byrjaði daginn á að fara og þrífa vinnuaðstöðuna, þurfti svo að skreppa á smá fund eftir þrifin og eftir það ákvað ég að fara í blómabúð og kaupa vorið.
Meða gulum og rauðum pímúlum á borðinu, skrautberjalengju, blómum og fiðrildum á kertastjakanum mínum held ég að mér hafi tekist að fá smá vor í lífið og tilveruna þrátt fyrir rokið og rigninguna úti en ég fór aldrei í vinnuna aftur, ekki einu sinni til að slökkva ljósið á skrifstofunni. Ég geri það á morgun.
Sjúkraliðinn mætti í kvöldmat og hafði með sér rauðvíns- og hvítvínsflösku í poka (og einn sokk á hvora flösku), hún vildi samt ekki drekka það með mér þó hún hafi verið búin að heita hvítvínsdrykkju þessa helgi. Ég læt hana standa við það um næstu helgi enda verður hún þá í fríi frá öllum vinnum og hætt að kenna stræðfræði og telja strætófarþega.
Listaneminn mætti heim í dag með tvo leikara og upptökuvél til að taka upp atriði fyrir lokaverkefnið og ég veit ekki hvað nágrannarinir hafa haldið þegar héðan heyrðist hávaðarifrildi kærustupars endurtekið með stuttu millibili í á annan tíma.
Þau mæta aftur á morgun til að taka upp atriðið þar sem leikkonan þarf að skríða út um þvottahúsgluggann. Þvottahúsglugginn á sko að leika baðglugga og ég vona leikkonunnar vegna að atriðið verði ekki tekið mjög oft.

20. mars 2007
20. mars 2007
Tuttugasti mars er góður dagur fyrir afmæli, oftast er á þessum degi jafndægri á vori en ekki þó í ár.
Ég þakka öllum sem heiðruðu mig á þessum regnblásna, snjóþunga vordegi, dóttirinni sem bakaði fyrir mig í gær kökur til að færa mínum langsoltnu og sælgætisþurfandi vinnufélögum og eldaði, ásamt bróðir sínum handa mér kvöldmat í kvöld og gekk svo frá í eldhúsinum með brosi á vör, vinkonunni sem hringdi í mig og söng afmælissönginn í símann, kennaranum sem færði mér túlípana og gjaldeyrisafganginn sinn úr síðustu ferð, bróðirnum sem færði mér fyrst jólagjöfina í hádeginu og súkkulaði og Mint Choocolate Baileys seinnipartinn, móður minni sem ekki hefur komið símanum sínum í lag til að geta talað almennilega við mig í allan dag og öllu fólkinu sem ég hitti í kvöld og endurnærðu sálartötrið óafvitandi um tímamótin. Ef ég gleymi einhverjum er það af því ég get bara ekki munað allt en mér finnst gott að þekkja ykkur öll.
Ég er að hugsa um að fara að skrönglast í rúmið og vona að ég vakni óþreytt í fyrramálið.
18. mars 2007
Ofurkonur
Ég hef alltaf öfundað allar þessar orkumiklu ofurkonur í kringum mig. Þær rúlla upp fullu námi með vinnu, labba með mér á Esjuna, klífa hæsta tind Evrópu eins og ekkert sé, hafa farið mörgum sinnum á Hvannadalshnjúkinn,sumar vinna aukavinnu með fullri vinnu og námi og heima hjá mörgum sést aldrei hrukka eða blettur þrátt fyrir allt þetta.
Ég afur á móti er í fullri vinnu, aukavinnu, slatta af einhverri sjálfboðavinnu og þyrft að hafa þann eiginleika að drífa verkin frá þegar ég vakna við fyrsta hana gal.
Ég vakna oftast við fyrsta hanagal en dríf ekki í neinu. Ég slugsa, les blöðin, hugsa um hitt og þetta og drekk kaffi á meðan (einu sinni reykti ég líka með kaffinu).
Ég held ég sé draumóramanneskja og verði aldrei ofurkona. Þar að auki hef ég ekki, af einhverjum ástæðum líkamlegt þrek og heilsu til þess að geta sinnt svona ofurkonuímynd af nokkru viti. Ég væli bara og kvarta undan verkjum hér og þar og bryð verkjatöflur eins og vinnufélagarnir byrðja sælgætið sem lekur um allt í vinnunni.
Eftir að hafa ekki treyst mér í aukaivnnuna í gær og ákveðið að vera heima og laga eitthvað af blettum of hrukkum í heimilishaldinu byrjaði ég daginn á að fara með Sjúkraliðanum að sækja pappakassa handa dóttir hennar. Eftir það var ég orðin svo sifjuð að ég skreið upp í rúm og svaf eins og steinn í klukkutíma. Ég sofnaði með verki og vaknaði með verki en til viðbótar við verkina vakanaði ég með sannfæringu.
Sannfæringu um að svona langaði mig bara ekki að haga lífinu áfram og gerði ráðstafanir til að breyta því.
Kannski ég geti tekið upp blíant og teikniblokk í haust og drifið mig á eins og eitt námskeið í rússnesku eða latínu. Salsa væri fínt líka.

17. mars 2007
Flatur niðurskurður á byggingarmagni!
Ég fékk Kópavogsblaðið inn um bréfalúguna í gær. Greip það upp af gólfinu þegar ég kom heim og las yfir meðan ég borðaði ísinn minn og plómurnar.
Þetta er svona ósköp venjulegt héraðsfréttablað sem er með fréttir af innansveitarmálum, útgefið af Borgarblöðum, fjármagnað með auglýsingum og er dreift frítt í öll hús í Kópavogi.
Yfirleitt nenni ég ekki að lesa svona blöð, ég rétt fletti þeim þó annað slagið og les ef ég sé fyrirsagnir sem vekja áhuga minn.
Ein þannig var í Kópavogsblaðinu í gær. ,,Nýtt skipulag á Kársnesi færir íbúum hverfi sem kemur í stað vannýtts atvinnusvæðis í niðurníðslu" Þessi fyrisögn vakti athygli mína fyrir tvennt, annað er það að ég bý nálægt og vinn stundum á umræddu atvinnusvæði og hitt var þessi langa orðmarga og leiðandi fyrirsögn.
Í þessu vannýtta atvinnusvæði vinn ég aukavinnuna mína og sé að þar eru þó nokkur fyrirtæki með rekstur þó þar mætti nýta svæðið enn frekar, og þó mörg hús séu þar í niðurníðslu eru einnig mörg sem er haldið ágættlega við og svona gildishlaðin alhæfing finnst mér ekki vera góð fréttamennska. Kannski skilgreinir blaðið sig ekki sem fréttablað heldur miðil fyrir ákveðnar skoðanir ákveðnna hópa og ég því með óraunhæfar kröfur á það.

Í lestri greinarinnar sem fylgdi þessari merkilegu fyrirsögn stendur að sumum lesendum finnist eitthvað og í framhaldi af því tekið fram að það sé ekki rétt. Hvernig getur verið rétt að finnast ekki eitthvað? Ef mér finnst þessi umrædda fyrirsögn vera of löng, getur verið að það sé ekki rétt að mér finnist það?
Og að aðalatriðinu (loksins) ,,en þar sem flatur 10-15% niðurskurður á byggingarmagni er í kortunum mun umferðin ekki ná hámarksþoli umferðaræða"
Af því við erum nú alltaf svo málefnalega hérna í Kópavoginum og eftir höfðinu dansa limirnir verð ég að segja að mér finnst þetta yndisleg og jafnvel krúttleg setning, en það er kannski ekki rétt að mér finnist það.
(og enn er þetta birt með sama fyrirvara um innsláttarvillur. Ég nenni bara ekki að lesa yfir)

16. mars 2007
Þannig fór nú það
Ég sveikst um félagsmálapakkann en sinnti styrkingu ættartengsla og talaði við móðir mína í klukkutíma í staðinn.
Eftir þá þolraun er ég í vandræðum með að halda opnum augunum og er þess vegna á leiðinni á stefnumót við koddann minn.

Með aumar tær.
Ég er loksins mætt heima hjá mér með aumar tær, syfjuð og þreytt. Ég er að hugsa um að hita upp hálfbökuð plómurnar sem ég á í ísskápnum, henda út á þær ís og borða meðan rennur í baðið.
Ég á dverghvítvínsflösku sem ég þarf að drekka og af því ég á hvorki grillaðan humar eða heitan pott til að njóta hennar almennilega væri reynandi að hafa glasið á baðkarsbrúninni. Nú eða koníaksglasið.
Ef ég verð vakandi þegar því er lokið þarf ég víst að sinna einhverjum félagsmálum sem ég var búin að lofa en hafa hrúgast upp í pósthólfinu mínu mér til mikillar armæðu.

16.mars
Fjórir dagar i afmæli segir vinkona mín og ég treysti tilvonandi stærðfræðikennara til að hafa það á hreinu. Ég treysti mér ekki til þess, mitt tímaskyn er ekki skárra en það að ég sendi út fundarboð í gær og bað hópinn um að mæta á föstudaginn 9. mars.
Mér var góðfúslega bent á að 9. mars væri liðinn á þessu ári, hvort ég ætlaði að vera svo skipulögð að raða niður fundunum fyrri næsta ár.
Það er Ally Mcbeelkvöld í kvöld á vinnustaðnum en í því felst mæting á næsta vínveitingastað strax eftir vinnu til að drekka rauðvín eins og mér er sagt að hafi tíðkast hjá lystarstolssjúklingnum Ally Mcbeel. Af því ég horfið aldrei á þættina hef ég sleppt rauðvíninu, haldið mig við kaffið og reynt að sitja ekki áveðurs til að sleppa við reykjarkófið.
Næsti vínveitingastaður á sjaldnast nema tvær rauðvínsflöskur á lager svo það eru ekki margir sem eru svo menningarlegir að sötra rauðvín í þessum ferðum en þessi sami staður er með poolborð og þá sjaldan að ég fæ einhvern til að spila við mig pool finnst mér gaman að mæta þarna.
(ég sá innsláttarvillu, tíndi henni aftur, nenni ekki að leita meira og þetta er birt með fyrirvara um stafsetningar og innsláttarvillur)

14. mars 2007
Meira RSS
Minn einstaklega fyndni sonur ákvað að finna út fyrir mig hvað RSS gerir og hér eru leiðbeiningarnar sem hann vildi deila með mér
Kennarinn segir að þessi drengur hafi einstaklega kantaðann húmor og að hann hafi það frá mér, ég er nú ekki alveg sannfærð um það.

13. mars 2007
7474
Síðan mín hefur frá upphafi verið hálfgert leyndarmál sem fáir hafa vitað af og enn færri lesið.
Undanfarnar vikur hefur teljarinn þó tifað hraðar en áður, ég veit ekkert hvað veldur en í dag sá ég svo flotta tölu á honum að ég bara varð að deilda því með ykkur. 7474.

12. mars 2007
Mánudagur
Hýtt og úðarigning að morgni er tilvalið göngveður svo ég dreif mig út. Núna tveimur tímum seinna er ég orðin grútsyfjuð.
Fór í Perluna í gær á bókamarkað og eignaðist tvær bækur, önnur er nokkrar blaðsíður og er um fjörur á Suðurlandi, ég veit ekki hvort ég á nokkurntíma eftir að lesa hana en ég verð stundum að eignast svona bækur.
Hitt hélt ég að væri ljóðabók eftir Njörð P. en hún er eitthvað allt annað. Frásögn, hugleiðingar, ævisaga? Ég er ekki viss en ég veit nokkurnvegin að ég hefði ekki keypt hana ef ég hefði verið með gleraugun á mér þegar ég reyndi að lesa aftan á hana, en ég var gleraugnalaus og gerði þess vegna þægileg mistök þegar ég keypti þessa bók.
Flubbinn minn kom heim í gær svo útvötnuð að hún minnti mest á saltfiskinn sem við vorum vön að útvatna í bæjarlæknum í gamla daga. Svefnpokinn, gönguskórnir mínir (af því þeir eru með stífum sóla og það er betra við brodda en hennar), allur fatnaður og farangur, nema nestið var hundrennandblautt en hljóði í henni ekkert voðalega slæmt svo þetta hefur sennilega ekki verið eins erfitt of oft áður þrátt fyrir snarvitlaust veður.
Ég nennti ekki að vinna í gær eins og áætlað var og þess vegna hafa verkirnir sem eru svo ofta að angra mig hér og þar verið lítilfjörlegir í morgun. Hvað sem verður þegar tölvupikkið byrjar aftur í alvöru og ég fer að sitja á botninum í marga tíma. Það segir mér að ég bara MEGI EKKI vinna 7 daga í viku. Sennilega verð ég að reyna að sinna aukavinnunni meira á kvöldin til að eiga frí á sunnudögum.

11. mars 2007
Rss.
Hvað gerir rss?
Nú bara verð ég að fá að vita það og Tölvunarflubbinn í útilegu.
Ætli þau hafi náð í nóg grjót til að fergja tjaldið?

Myndageymsla
Ég keypt mér not af vefalbúmi til að geyma myndirnar mínar á svo þær fari ekki í hundana ef tölvan hrynur. Nú er ég búin að sitja við og setja inn myndir og er ekki nærri búin!
Svo hefði ég þurft að fara í gegnum þær, laga titla, henda út rusli og raða betur upp. Helst að láta svo prenta eitthvað af þeim.
Ætli ég fari ekki bara snemma á eftirlaun og taki til í myndunum mínum þá!

10. mars 2007
Niðursuðuvörur.
This root, traditionally used as a side dish in Latin American cuisine, is now available ready-to-eat from Baidia. Simply heat it um in the microwave for 45 seconds an serve it with mojo or salsa.
Þetta stóð á dós af niðursoðnu cassava sem ég keypti í Nóatúni um daginn. Ef upplýsingarnar eru ekki réttar og mér var ekki óhætt að borða þetta beint úr dósinni er ég í vondum málum því hrá er rótin baneitruð. En af því að ég hef í langan tíma fundið hjá mér þörf á að smakka cassava lét ég verða af því að henda innihaldi dósarinnar á pönnu og steikja hana með kjúklingi og haug af hvítlauk, chili og grænu karrý. Ég held að það hafi ekki flokkast undir Latin American cusine og ekki heldur Asian cusine. Þetta var ágætis sambræðingur af hinu og þessu og önnur mini hvítvínsflaskan sem ég fékk hjá Kennaranum í dag þegar ég fylgdi honum í gegnum ÁTVR smakkaðist ágættlega með.

Eitt af því sem við Kennarinn eigum sameiginlegt er að langa til að fara í búðir í lok leiðinlegs vinnudags og kaupa okkur flík til að lífga upp á sláartetrið. Ég neitaði mér um það í dag af þeirri góðu og gildu ástæðu að hverri krónu er ráðstafað í ferðalög en var boðið í búðarráp að skoða karlmannafatnað í staðinn, ég náttlega stóðst ekki mátið og fór í Kringluna. Fékk svo virkilega slæmt tilfelli af innilokunarkennd þar þegar ég stóð í þvarginu og þrasinu þarna inni. Merkilegt hvað getur verið mikill hávaði og kliður og ónota ös í þessari byggingu. Ég held að hljóðburðurinn sé svona slæmur þarna.
Ég lifið nú samt Kringluferðina af, græddi meira að segja á henni þessar fyrr nefndu hvítvínsflöskur sem eru í akkúrat réttri stærð fyrir mig og þar sem ég er ekki farin að veikjast af cassava rótinni held ég að ég lifi hana af líka.
Ég hef annars ekki grænan grun um hvað er þetta mojo sem var mælt með sem meðlæti.

Bara rétt aðeins...
Ég ætlaði bara rétt aðeins að kíkja á netið meðan ég tæki kaffipásu en kaffipásan lengdist og lengdist og ég athugaði hvað væri að gerast hjá hinum og þessum, viðkomandi og óviðkomandi, skoðaði jólamyndir flubbans og rakst á mitt eigið vefalbúm sem ég á eftir að setja inn í helling af myndum.
Þar með nenni ég ekki að gera meira í bili og ætla í bæinn að slæpast og slóra þó það þýði að ég þurfi að mæta hér aftur á morgun.

9. mars 2007
Veðurlýsing dagsins.
Það er sólskin og logn á Grafarvoginum en gáraður sjór í Sundunum. Esjan hvít niður í miðjar hlíðar og Móskraðshnjúkarnir niður undir jafnsléttu. Skýin kögra neðstu klettabeltin í Kistufellinu eins og hvítt skegg.
8. mars 2007
Bráðasmit
Ég held að Sjúkraliðinn hafi smitað mig í göngunni í gær og ekki af neinu skemmtilegu.
Suma daga er fólk meira fífl en aðra og umburðarlyndi undirritaðrar í lágmarki.

7. mars 2007
og stundum
held ég að menn sem ekki vinna vinnuna sína samviskusamlega hafi gott af að við þeim sé stuggað aðeins og núna hallast ég að því að heimskt yfirvald sé verra en kærulaust.
Menningarminjar á göngleiðum.
Ég beygði mig niður síðasta miðvikudag og tók splitti upp af leið minni upp eftir Esjunni, áðan stakk ég hendinni í buxnavasann og viti menn þar var litskrúðugur spotti sem ég hafið hirt upp á sömu leið í kvöld. Ef ég held svona áfram verð ég komin með stóra hrúgu af hinum og þessum menningarminjum af Esjuslóðum og það væri vel nýtanlegt í eitthvað.
Ég er ,,alvarlega" að hugsa um að gera listaverk, listaverk sem gætið heitið t.d. Misgóðir göngumenn, Týnt úr trússi, Af vörðum og vistum eða eitthvað ennþá frumlegra og (ó)gáfulegra. Ég hef grun um að það væri hægt að búa til eitthvað úr öllu því sem til fellur á þessari gönguleið og halda sýningu á verkinu á bílastæðinu upp við Mógilsá.
Ég ætla að sjá til hvað verður stór hrúga í skottinu á bílnum eftir svona- 15 vikur eða svo.

4. mars 2007
HItastigið hér og þar.
Ég sé að í Azerbasjan er hitinn á bilinu 12-14 °C. Ætli sé byrjað að vora á svæðinu.
Næsta vika
Þá er ég, samkvæmt fyrirmælum Sjúkraliðans, búin að plana eldhúsverkin alla þessa viku og fram á næsta sunnudag.
Ég vann í dag og vann svo svolitið meira en hefði þurft að vinna ennþá meira. Ég er með þrjár fundargerðir sem ég þarf að leggja lokahönd á og ég nenni ekki að gera neitt annað í kvöld en að fara í sturtu og fara svo að sofa. Kannski ég athugi samt fyrst hvað Flubbanum finnst svona findið í sjónvarpinu.

2. mars 2007
Svona er þetta bara
Sum verkefni eru eingöngu til þess fallin að valda manni þunglyndi og þá er best að leggja sig þegar maður kemur heim.
Ég ætla að gera það.
Ég ætla að gera það.
Veðurlýsing dagsins.
Fyrir stundu þaut aragrúi af snjókornum á láréttu flugi frá austri til vesturs fyrir gluggann minn. Stór hluti þeirra lenti á Esjunni og hún er orðin hvít niður í miðjar hlíðar.
Ég gekk upp í 393 metra hæð á miðvikudaginn, þó Sjúkraliðinn gæfi sér ekki tíma í viðringu fór ég ekki ein, ég hafði með mér vinnufélaga sem entist til að bíða eftir mér í brekkunum af því hún var að jafna sig eftir fótaaðgerð. Þegar hún verður búin að jafna sig almennilega kem ég til með að sjá undir iljarnar á henni upp Esjuna á miðvikudögum og mæta henni svo þegar hún kemur niður og ég hálfnuð upp. Gaman að labba með fólki sem tekur svona til orða ,,þegar ég fór fyrst á Hvannadalshnjúkinn” . Ég segi bara ,, þegar ég labbaði á Þverfellshornið”.
Gaman að þessu og gaman að því hvað dagarnir eru bjartir og sólríkir þessar vikurnar.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)