This root, traditionally used as a side dish in Latin American cuisine, is now available ready-to-eat from Baidia. Simply heat it um in the microwave for 45 seconds an serve it with mojo or salsa.
Þetta stóð á dós af niðursoðnu cassava sem ég keypti í Nóatúni um daginn. Ef upplýsingarnar eru ekki réttar og mér var ekki óhætt að borða þetta beint úr dósinni er ég í vondum málum því hrá er rótin baneitruð. En af því að ég hef í langan tíma fundið hjá mér þörf á að smakka cassava lét ég verða af því að henda innihaldi dósarinnar á pönnu og steikja hana með kjúklingi og haug af hvítlauk, chili og grænu karrý. Ég held að það hafi ekki flokkast undir Latin American cusine og ekki heldur Asian cusine. Þetta var ágætis sambræðingur af hinu og þessu og önnur mini hvítvínsflaskan sem ég fékk hjá Kennaranum í dag þegar ég fylgdi honum í gegnum ÁTVR smakkaðist ágættlega með.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli