Ég er loksins mætt heima hjá mér með aumar tær, syfjuð og þreytt. Ég er að hugsa um að hita upp hálfbökuð plómurnar sem ég á í ísskápnum, henda út á þær ís og borða meðan rennur í baðið.
Ég á dverghvítvínsflösku sem ég þarf að drekka og af því ég á hvorki grillaðan humar eða heitan pott til að njóta hennar almennilega væri reynandi að hafa glasið á baðkarsbrúninni. Nú eða koníaksglasið.
Ef ég verð vakandi þegar því er lokið þarf ég víst að sinna einhverjum félagsmálum sem ég var búin að lofa en hafa hrúgast upp í pósthólfinu mínu mér til mikillar armæðu.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli