16. mars 2007

16.mars

Fjórir dagar i afmæli segir vinkona mín og ég treysti tilvonandi stærðfræðikennara til að hafa það á hreinu. Ég treysti mér ekki til þess, mitt tímaskyn er ekki skárra en það að ég sendi út fundarboð í gær og bað hópinn um að mæta á föstudaginn 9. mars.
Mér var góðfúslega bent á að 9. mars væri liðinn á þessu ári, hvort ég ætlaði að vera svo skipulögð að raða niður fundunum fyrri næsta ár.

Það er Ally Mcbeelkvöld í kvöld á vinnustaðnum en í því felst mæting á næsta vínveitingastað strax eftir vinnu til að drekka rauðvín eins og mér er sagt að hafi tíðkast hjá lystarstolssjúklingnum Ally Mcbeel. Af því ég horfið aldrei á þættina hef ég sleppt rauðvíninu, haldið mig við kaffið og reynt að sitja ekki áveðurs til að sleppa við reykjarkófið.
Næsti vínveitingastaður á sjaldnast nema tvær rauðvínsflöskur á lager svo það eru ekki margir sem eru svo menningarlegir að sötra rauðvín í þessum ferðum en þessi sami staður er með poolborð og þá sjaldan að ég fæ einhvern til að spila við mig pool finnst mér gaman að mæta þarna.

(ég sá innsláttarvillu, tíndi henni aftur, nenni ekki að leita meira og þetta er birt með fyrirvara um stafsetningar og innsláttarvillur)

Engin ummæli: