Það á eftir að koma í ljós hvenær ég losna þaðan og hver tekur við en ég er strax byrjuð að hlakka til að eiga frídaga án þess að þurfa að vinna tvöfalt næstu vikur á eftir til að vinna af mér fríin.
Reyndar fannst mér þetta vera vandamál í aðalvinnunni á síðasta sumri, ég var alltaf að vinna eins og skepna til að klára upp áður en ég færi í frí. Það er samt skárra að þurfa þess bara í einni vinnu, ekki tveimur.
Svo vonandi verður apríl bara í fullri aukavinnu og maí og júní í hálfri til að koma einhverjum inn í starfið.
Og var ég búin að minnast á það? Það er vor í lofti, sól og blíða og kannski hef ég tíma fyrir garðvinnu þetta árið!
Lífið getur verið ljúft á svona dögum og svo eru ekki nema 33 dagar í flugið langa til Baku.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli