24. mars 2007

Föstudagskvöld tuttugasti og eitthvað

Er orðin dagavilt og hef ekki hugmynd um hvaða mánaðardagur er í dag. Það er ágætt.
Ég ætlaði að vinna í dag og byrjaði daginn á að fara og þrífa vinnuaðstöðuna, þurfti svo að skreppa á smá fund eftir þrifin og eftir það ákvað ég að fara í blómabúð og kaupa vorið.
Meða gulum og rauðum pímúlum á borðinu, skrautberjalengju, blómum og fiðrildum á kertastjakanum mínum held ég að mér hafi tekist að fá smá vor í lífið og tilveruna þrátt fyrir rokið og rigninguna úti en ég fór aldrei í vinnuna aftur, ekki einu sinni til að slökkva ljósið á skrifstofunni. Ég geri það á morgun.
Sjúkraliðinn mætti í kvöldmat og hafði með sér rauðvíns- og hvítvínsflösku í poka (og einn sokk á hvora flösku), hún vildi samt ekki drekka það með mér þó hún hafi verið búin að heita hvítvínsdrykkju þessa helgi. Ég læt hana standa við það um næstu helgi enda verður hún þá í fríi frá öllum vinnum og hætt að kenna stræðfræði og telja strætófarþega.

Listaneminn mætti heim í dag með tvo leikara og upptökuvél til að taka upp atriði fyrir lokaverkefnið og ég veit ekki hvað nágrannarinir hafa haldið þegar héðan heyrðist hávaðarifrildi kærustupars endurtekið með stuttu millibili í á annan tíma.
Þau mæta aftur á morgun til að taka upp atriðið þar sem leikkonan þarf að skríða út um þvottahúsgluggann. Þvottahúsglugginn á sko að leika baðglugga og ég vona leikkonunnar vegna að atriðið verði ekki tekið mjög oft.

Engin ummæli: