Tuttugasti mars er góður dagur fyrir afmæli, oftast er á þessum degi jafndægri á vori en ekki þó í ár.
Ég þakka öllum sem heiðruðu mig á þessum regnblásna, snjóþunga vordegi, dóttirinni sem bakaði fyrir mig í gær kökur til að færa mínum langsoltnu og sælgætisþurfandi vinnufélögum og eldaði, ásamt bróðir sínum handa mér kvöldmat í kvöld og gekk svo frá í eldhúsinum með brosi á vör, vinkonunni sem hringdi í mig og söng afmælissönginn í símann, kennaranum sem færði mér túlípana og gjaldeyrisafganginn sinn úr síðustu ferð, bróðirnum sem færði mér fyrst jólagjöfina í hádeginu og súkkulaði og Mint Choocolate Baileys seinnipartinn, móður minni sem ekki hefur komið símanum sínum í lag til að geta talað almennilega við mig í allan dag og öllu fólkinu sem ég hitti í kvöld og endurnærðu sálartötrið óafvitandi um tímamótin. Ef ég gleymi einhverjum er það af því ég get bara ekki munað allt en mér finnst gott að þekkja ykkur öll.
Ég er að hugsa um að fara að skrönglast í rúmið og vona að ég vakni óþreytt í fyrramálið.
1 ummæli:
Til hamingju með daginn þótt seint sé, sé að ég verð að fara koma mér upp afmælisdagabók, er alltof gleymin á afmælisdag í kringum mig. Hef meira segja tekist að gleyma eigin afmælisdegi, alveg satt.
Gilla
Skrifa ummæli