Hýtt og úðarigning að morgni er tilvalið göngveður svo ég dreif mig út. Núna tveimur tímum seinna er ég orðin grútsyfjuð.
Fór í Perluna í gær á bókamarkað og eignaðist tvær bækur, önnur er nokkrar blaðsíður og er um fjörur á Suðurlandi, ég veit ekki hvort ég á nokkurntíma eftir að lesa hana en ég verð stundum að eignast svona bækur.
Hitt hélt ég að væri ljóðabók eftir Njörð P. en hún er eitthvað allt annað. Frásögn, hugleiðingar, ævisaga? Ég er ekki viss en ég veit nokkurnvegin að ég hefði ekki keypt hana ef ég hefði verið með gleraugun á mér þegar ég reyndi að lesa aftan á hana, en ég var gleraugnalaus og gerði þess vegna þægileg mistök þegar ég keypti þessa bók.
Flubbinn minn kom heim í gær svo útvötnuð að hún minnti mest á saltfiskinn sem við vorum vön að útvatna í bæjarlæknum í gamla daga. Svefnpokinn, gönguskórnir mínir (af því þeir eru með stífum sóla og það er betra við brodda en hennar), allur fatnaður og farangur, nema nestið var hundrennandblautt en hljóði í henni ekkert voðalega slæmt svo þetta hefur sennilega ekki verið eins erfitt of oft áður þrátt fyrir snarvitlaust veður.
Ég nennti ekki að vinna í gær eins og áætlað var og þess vegna hafa verkirnir sem eru svo ofta að angra mig hér og þar verið lítilfjörlegir í morgun. Hvað sem verður þegar tölvupikkið byrjar aftur í alvöru og ég fer að sitja á botninum í marga tíma. Það segir mér að ég bara MEGI EKKI vinna 7 daga í viku. Sennilega verð ég að reyna að sinna aukavinnunni meira á kvöldin til að eiga frí á sunnudögum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli