Ég ætlaði bara rétt aðeins að kíkja á netið meðan ég tæki kaffipásu en kaffipásan lengdist og lengdist og ég athugaði hvað væri að gerast hjá hinum og þessum, viðkomandi og óviðkomandi, skoðaði jólamyndir flubbans og rakst á mitt eigið vefalbúm sem ég á eftir að setja inn í helling af myndum.
Þar með nenni ég ekki að gera meira í bili og ætla í bæinn að slæpast og slóra þó það þýði að ég þurfi að mæta hér aftur á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli