Í lestri greinarinnar sem fylgdi þessari merkilegu fyrirsögn stendur að sumum lesendum finnist eitthvað og í framhaldi af því tekið fram að það sé ekki rétt. Hvernig getur verið rétt að finnast ekki eitthvað? Ef mér finnst þessi umrædda fyrirsögn vera of löng, getur verið að það sé ekki rétt að mér finnist það?
Og að aðalatriðinu (loksins) ,,en þar sem flatur 10-15% niðurskurður á byggingarmagni er í kortunum mun umferðin ekki ná hámarksþoli umferðaræða"
Af því við erum nú alltaf svo málefnalega hérna í Kópavoginum og eftir höfðinu dansa limirnir verð ég að segja að mér finnst þetta yndisleg og jafnvel krúttleg setning, en það er kannski ekki rétt að mér finnist það.
(og enn er þetta birt með sama fyrirvara um innsláttarvillur. Ég nenni bara ekki að lesa yfir)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli