Ég fékk Kópavogsblaðið inn um bréfalúguna í gær. Greip það upp af gólfinu þegar ég kom heim og las yfir meðan ég borðaði ísinn minn og plómurnar.
Þetta er svona ósköp venjulegt héraðsfréttablað sem er með fréttir af innansveitarmálum, útgefið af Borgarblöðum, fjármagnað með auglýsingum og er dreift frítt í öll hús í Kópavogi.
Yfirleitt nenni ég ekki að lesa svona blöð, ég rétt fletti þeim þó annað slagið og les ef ég sé fyrirsagnir sem vekja áhuga minn.
Ein þannig var í Kópavogsblaðinu í gær. ,,Nýtt skipulag á Kársnesi færir íbúum hverfi sem kemur í stað vannýtts atvinnusvæðis í niðurníðslu" Þessi fyrisögn vakti athygli mína fyrir tvennt, annað er það að ég bý nálægt og vinn stundum á umræddu atvinnusvæði og hitt var þessi langa orðmarga og leiðandi fyrirsögn.
Í þessu vannýtta atvinnusvæði vinn ég aukavinnuna mína og sé að þar eru þó nokkur fyrirtæki með rekstur þó þar mætti nýta svæðið enn frekar, og þó mörg hús séu þar í niðurníðslu eru einnig mörg sem er haldið ágættlega við og svona gildishlaðin alhæfing finnst mér ekki vera góð fréttamennska. Kannski skilgreinir blaðið sig ekki sem fréttablað heldur miðil fyrir ákveðnar skoðanir ákveðnna hópa og ég því með óraunhæfar kröfur á það.