7. mars 2007

Menningarminjar á göngleiðum.

Ég beygði mig niður síðasta miðvikudag og tók splitti upp af leið minni upp eftir Esjunni, áðan stakk ég hendinni í buxnavasann og viti menn þar var litskrúðugur spotti sem ég hafið hirt upp á sömu leið í kvöld. Ef ég held svona áfram verð ég komin með stóra hrúgu af hinum og þessum menningarminjum af Esjuslóðum og það væri vel nýtanlegt í eitthvað.
Ég er ,,alvarlega" að hugsa um að gera listaverk, listaverk sem gætið heitið t.d. Misgóðir göngumenn, Týnt úr trússi, Af vörðum og vistum eða eitthvað ennþá frumlegra og (ó)gáfulegra. Ég hef grun um að það væri hægt að búa til eitthvað úr öllu því sem til fellur á þessari gönguleið og halda sýningu á verkinu á bílastæðinu upp við Mógilsá.
Ég ætla að sjá til hvað verður stór hrúga í skottinu á bílnum eftir svona- 15 vikur eða svo.

Engin ummæli: