27. mars 2007

Veðrið hér og þar ..

Í gær var komið vor og í morgun snjór og hálka. Ég nennti ekki að fara út og setja driflokurnar á og mér er sagt að án þeirra sé EKKERT gagn í að hafa bílinn í fjórhjóladrifinu og þess vegna skautaði ég framhjá innkeyrslunni í vinnuna í morgun.
Það er ekki hægt að kvarta undan einhæfu veðri á Íslandi og það hlýtur að vera bara jákvætt.
Veðrið í Kákasuslöndunum er aftur á móti tíðindalaust og voðalega lítið gaman að fylgjast með veðurmælingunum sem ég linkaði inn á. Þar hefur verið 9 til 11 stiga hiti frá því ég fann veðurstofurnar á svæðunum, í mestu hitasveiflunum hefur hitinn farið niður í 8 stig samkvæmt þeim mæli sem ég lít oftast á.
Þegar ég sé svona óspennandi veðurlýsingar verð ég voða glöð með íslenskt veður, ég er svo mikill spennufíkill.
Ég ætla í Esjugöngu á morgun og svo á trébátafyrirlestur annað kvöld.

Engin ummæli: