Ég ætlaði eiginlega að dettíðað í kvöld en þegar til kastana kom er ég ekki að finna mig innan um ókunnugt fólk í misjöfnu ástandi svo ég fór heim og sinnti kettinum, gullfiskunum og handavinnunni. Kíkti aðeins á partýið aftur og fann ekki ennþá hjá mér neina löngun til að detta í það, mig langar meira til að vakna útsofin í fyrramálið og fá mér göngtúr upp á einhverja hæðina.
Gamall skólafélagi minn sagði einhverntíma að ég væri mannblendin og opin persónuleiki. Ég er viss um að hann er alveg húmorslaus annars hefði ég haldið að hann væri að gera grín að mér.
Annars er ég frekar pirruð á því hvað þessi dagur lagðist fyrir lítið. Ég gerði ekki nokkurn skapaðan hlut af viti og ég má ekki við því að gera ekkert heilu dagana. Það er 1. maí á morgun og þá eru bara tvær vikur í Hvítasunnu, þá fara tveir vinnudagar í leikaraskap norður á Ströndum og viku eftir Hvítasunnu er meiningin að fara austur á land og vera, helst, í tvær vikur. Ég þarf að bretta upp ermar og fara að gera eitthvað. Annars er þessi síðasta vika sem ég var að leysa af í eh. vinnunni auðvitað búin að skila mér 5 aukasumarfrísdögum en það dugir ekki að eiga sumarfrí þegar enginn leysir mann af og vinnur verkin á meðan. Þetta er gallinn við að vera á mörgum vinnustöðum.
30. apríl 2005
Enn eitt ...
You Belong in ParisStylish and a little sassy, you were meant for Paris. The art, the fashion, the wine, the men! Whether you're enjoying the cafe life or a beautiful park... You'll love living in the most chic place on earth What City Do You Belong in? Take This Quiz :-) Find the Love of Your Life (and More Love Quizzes) at Your New Romance. | ![]() |
Súpufréttir
Ég sníkti mér súpuboð í kvöld. Borðaði súpuna og stakk svo af úr partýinu, held það hafi örugglega enginn tekið eftir þvi. Er að reyna að ákveða mig hvort ég á að skríða undir sæng eða fara og kíkja á liðið og sjá hvort það er uppi á borðum eða undir.
29. apríl 2005
Endalaust hægt ...
að láta spila með sig.
Ég er farin að skoða skóla á netinu. Fjarnám.
Námsveiki er ólæknandi og ég er að hugsa um að stofna 12 sporasamtök sem taka á þessu vandamáli. Eina skilyrðið fyrir aðild væri að vera með ólæknandi náms- og skólasýki.
Væntanlega yrði að hafa önnur samtök fyrir aðstandendur námsfíkla.
--------------------------------------------
Úr einu í annað.
Fór yfir í Örnefnastofnun og náði í nokkur ljósrit af örnefnaskrám og staðarlýsingum. Þarna svífur yfir vötnunum (hillunum) andi gamalla bóka og grúskara, ég elska svona staði og lykt af gömlum skræðum. Hvers vegna í ósköpunum er ég ekki að vinna við eitthvað sem tengist gömlum skruddum og grúski.
Vantar einvhern aðstoð við heimildaöflun úr gömlum skræðum?

Væl
Sofna þreytt og vakna þreytt og berst við sifju allan daginn.
Mikið djöfull er ég orðin leið á því!
Mikið djöfull er ég orðin leið á því!
28. apríl 2005
Gönguferði á fimmtudegi
Fór í göngutúr í kvöld. Eftir að hafa breytt saumaklúbbnum í göngklúbb hef ég veri að plana að labba hluta af gömlu þjóðleiðinni austur fyrir fjall. Þann spotta sem er fyrsti bíl og hestvagnavegur lagður á Íslandi. Spölurinn frá Litlu Kaffistofunni og að Koviðarhóli. Er búin að finna og ljósrita kort af svæðinu, tína til upplýsingar um eitthvað af örnefnum og draugasögum og er ALLAF á leiðinni þangað- á hverjum fimmtudegi- en aldrei verður neitt úr því. Við þurfum nefnilega helst að fara á tveimur bílum til að losna við að ganga fram og til baka, ekki það að við ættum alveg að ráða við það, þetta er engin óskapa vegalengd en ég er búin að bíta í mig að hafa bíla við báða enda.
Af því við vorum bara á einum bíl í kvöld frestaði ég því eina ferðina enn að skoða Draugatjörn og við röltum Búrfellsgjána í rólegheitum í staðinn. Búrfellssgjáin ,,lengsta og formfegursta hrauntröð á landinu" eins og það er orðað á ýmsum stöðum stóð alveg undir þeim lýsingum og sprungurnar sem skerast þvert á hana eru ótrúlega djúpar, ein af þeim er Vatnsgjáin sem er neðst í Búrfellsgjánni og er sennilega eina vatnsbólið á stóru svæði þarna í hrauninu. Gjábakkarétt og aðrar mannvistarleifar skoðuðum við líka í rólegheitum.
Ég finn sárt fyrir skorti á jarðfræðikunnáttu á svona stöðum en Búrfellsgjáin er ótrúlega löng og breið og það hlýtur að hafa verið magnað hraunflóð sem rann eftir henni á sínum tíma.

27. apríl 2005
Komin heim
Sagan næstum endalausa af Lundúnaferð okkar vinkvennana er loksins búin. Þessi ferð sem var bókuð í hvað-, október eða nóvember og átti upphaflega að vera í febrúar en var frestað fram í apríl er gengin yfir og ég gekk mig upp að hnjám.
Fórum út á miðvikudag og höfðum það af að fara með vitlausri lest til London en það kom ekki að sök, það kom enginn til að tékka á miðunum okkar, annars hefði okkur verið hent út eða látnar borga ferðina. Við (ég) fann lest til að koma okkur að hótelinu (ekki stystu leið en leið samt) og við fundum hótelið. Ég var búin að vera með magapínu út af þessu blessaða hóteli sem ég bókaði fyrir rest á. Síðast þegar ég fór á þetta svæði bókaði ég á ódýrasta hóteli sem ég fann og átti ekki von á neinum lúxus en ég átti heldur ekki von á fúkkalyktinni sem mætti okkur þegar við stigum þar inn fyrir dyr. Sem betur fer var slapp herbergið okkar við fúkkalyktina en það var líka það eina.
Þess vegna var ég meir en lítið spennt að þefa þegar ég steig inn fyrir dyrnar á Astor Court Hotel en viti menn það lyktaði ágættlega þar. Gamalt hús og skemmtilega skrítið en hreint og herbergið rúmgott.
Á sumardaginn fyrsta byrjuðum við á að skoða sumarið í London, þe. við fórum í næsta garð og röltum þar í hringi í nokkra tíma. Það var sólskin og hiti og trén voru þakin snjóhvítum eða bleikum blómum svo mann langaði ekki til að gera neitt annað en sitja undir þeim í sólskininu og horfa á öll þessu mjúku stóru blóm sem þöktu allar greinar.
Túlípanar, páskaliljur, hátíðaliljur og sitthvað fleira blómstraði í beðum, fuglarnir pöruðu sig á tjörnum og tré sem standa á tjarnarbökkunum með slútandi greinar og sem bjóða upp á að sitja undir þeim og horfa á fuglalífið, það er eitthvað sem gerir svona ferðir eftirsóknarverðar.
Við gengum meðfram dýragaðinum og ákváðum að geyma heimsókn þangað en komumst samt ekki hjá því að sjá gíraffana gnæfa yfir þegar við gengum meðfram gíraffahúsinu. Þeir virkuð loðnir og mjúkir eins og eitthvað sem er búið til handa manni til að knúsa. Allt virtist mjúkt og hlýtt, trjágreinarnar þykkar af mjúkum blómum, gíraffar, sebrahestar, hegrar, svartir svanir og sólskinið. Allstaðar eitthvað sem maður heldur að sér hæfilegt til að hjúfra sig inn í.
Kíktum svo á nokkra túristastaði til að standa okkur í stykkinu en einhvernveginn tókst okkur nú samt að rata í annan garð og sjá meira fuglalíf og meira af gróðri.
Vaxmyndasafnið var skoðað á öðrum degi og á vissan hátt varð ég fyrir vonbrigðum, ég bjóst við einhverju meira. Vaxmyndinrnar í Sögusafninu í hitaveitutanknum eru betri en þær sem ég sá þarna. Ekki af eins frægu fólki en betur gerðar.
Og eins og segir einhverstaðar ,,allar komu þær aftur og ...." en mikið ofsalega væri gaman að fara bara með bakpokann, hoppa upp í næstu lest eitthvað út í bláinn og gista bara þar sem maður gefst upp á að fara lengra í það og það skiptið.
Og mikið væri gaman að fara Göngurákina milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar en ekki með Ellu hún er of lofthrædd.

25. apríl 2005
Það besta
...við að fara að heiman er að koma heim aftur og fá að sofna í sínu eigin rúmi, og reyndar er ofsalega þægilegt að fá íslenskt lyklaborð.
22. apríl 2005
Sumar og sol
Thad er sumar og solskin i London og gardarnri frabaerir. Vaxmyndasafnid i morgun og budir a eftir.
19. apríl 2005
Hann á afmæli í dag, hann...
Hannáafmæliídag,hannáafmælihann Skrípó........
Merkilegasti köttur í vesturbæ Kópavogs er þriggja ára í dag og ég óska honum hjartanlega til hamingju með daginn.
Hann er stór upp á sig og talar helst aldrei við mig nema til að kvarta undan fæðinu eða annari þjónustu á þessu heldur slaka hóteli sem hann telur sig búa á.
Hann vill ekki læra að nota kattalúguna sem við gáfum honum í afmælisgjöf og beit mig í dag þegar ég dröslaðist með hann niður í kjallara til að troða honum út um lúguna í staðinn fyrir að opna aðaldyrnar fyrir hann og standa heiðursvörð meðan hann gekk út eins og hefur verið venja hér í tæp þrjú ár.
Hann er lítið fyrir að aðlaga sig að nýjum siðum, siðir eiga að aðlagast honum.
Hann er köttur sem fer sínar eigin leiðir, þolir ekki klapp og kjass og er engum háður.
Hann lítur á það sem heiðursvott við okkur að fá að gefa honum mat. Við erum líka mjög upp með okkur af þvi trausti sem hann sýnir okkur að þiggja af okkur þurrfóðrið.

Hér...
Hér er ég búin að sitja í tölvuleik í hálftíma og bíða eftir að einhver pakki niður fyrir mig. Þessi einhver býr sennilega ekki hér amk sést hann ekki og ekker fer niður í tösku. Alltaf þarf maður að gera allt sjálfur!
18. apríl 2005
Játning
Ég átti erindi inn í einn stofuskápinn áðan. Þennan sem vínbirgðir heimilisins hrannast upp í. Mér varð eiginlega um og ó, það er ekkert pláss fyrir meiri toll þar ég næ ekki að drekka hann upp milli utanlandsferða. (1x á ári)
Ég held það sé best að draga úr yfirlýsingum um fyrirhugaða drykkju í næsta ferðalagi og viðurkenna að ég er lítil og léleg drykkjumanneskja og meiri í orði en á borði. (það vita það nú kannski allir sem þekkja til, ég hef þó stundum reynt)
Það bylur hæst í tómri tunnu og fæst orð hafa minnsta ábyrgð og .. ég man ekki fleiri málshætti í bili.

Veðrið í London
Það er rigning í London í dag og spá rigningu þar fram á föstudag. Mér er nokk sama ég ætla að vera í London í fjóra daga og njóta þess að gera ekki neitt annað en vera túristi, skoða söfn, búðir, markaði, mannfjöldan, garðana og bjórinn. Svo efast ég nú um að veðurspáin á Yahoo sé miklu áreiðanlegri en íslensku veðurspárnar þannig að ef það er spáð rigningu verður líklega sólskin!
Vinkona mín er að vinna þrefalda vakt þessa stundina og ég hef grun um að þegar hún loksins kemst í frí og eigi að fara að slappa af hrynji hún saman í ofþreytuhrúgu og ég þurfi að fá hjólastól til að drösla henni á milli staða. Annars er mesta furða hvað hún hangir lengi upprétt á þrjóskunni einni saman. Sennilega kann hún ekki annað orðið.
Út á miðvikudag og ég nenni ekki að vinna þessa tvo daga þangað til! Þarf reyndar að kíkja aðeins á þrifaverkefnið okkar það er nokkura tíma vinna eftir þar en hluti af því bíður þangað til við komum heim. Annars sé ég alveg fyrir mér að ég gæti búið í svona húsnæði. Milli þrjú og fjögurhundruð fermetra húsnæði sem er að mestu leyti einn geimur. Það væri flott að hafa 200 fermetra stofu, sófasettið hyrfi í eitt hornið eins og krækiber í Helvíti og restin af stofunni yrði notuð til að læra á línuhjólaskauta. Þegar maður væri búin að læra á skautana mætti rækta frumskóg og fá sér páfagauka. Og auðvitað vera með froskatjörn.

16. apríl 2005
Bloggleti
Bloggletin er þvílík að ég nenni ekki að lesa blogg, ekki einu sinni þessa ,,föstu liði eins og venjulega" hvað þá skrifa allt sem mér liggur á hjarta, sem er náttlega helling (býst ég við, man það bara ekki núna)
Þrif í dag og þrif á morgun. Ef við verðum komnar í góða þjálfun höldum við áfram með hreingerningargræjurnar og þrífum heima hjá okkur líka. Það er sko hreinna þar en þessi ósköp sem við erum að berjast við í vinnuni!

Kalt?
Mér hlýtur að vera kalt, ég byrjaði að prjóna mér lopasjal í fyrradag og í kvöld byrjaði ég á öðru lopasjali. Prjóna bæði í einu, ekkert vandamál.
Þetta er farið að minna á vinkonu sem ég á sem er alltaf með tugi handverksstykkja í gangi í einu!

14. apríl 2005
Orðin gömul
Maður sér þau nýfædd og krumpin, fer að þykja væntu um þau, fylgist með þeim taka fyrstu skrefin, ef ekki með eigin augum þá af lýsingum foreldranna, læra að tala, sleppa bleyjunni, fara í leikskóla, fara í skóla, lenda í vanda, sálarstríði..
Fylgist með þeim beint eða óbeint lenda í slæmum félagskap, flosna upp úr skóla, lenda í neyslu, fara á Stuðla, fara á Vog. Það kemst á rútina, Stuðlar, Vogur, uppeldisheimili og aftur Stuðlar, Vogur .....
Þau eignast börn, bjóða börnunum upp á ömurlegt líf með foreldrum og félögum í mis ,,góðu" ástandi. Maður veit að það er verið að ala upp enná stærra vandamál og ,,kerfið" grípur ekki inn í fyrr en næsta kynslóð er orðin að andlega bækluðum einstaklingum sem er orðið of seint að gera eitthvað fyrir. Manni finnst ennþá vænt um þau en er ráðþrota, hefur engan rétt og getur engu breytt eða bjargað.
Þegar ég er búin að fylgjast með svona lífshlaupi finnst mér ég vera óskaplega gömul og þreytt.
Ég fékk innsýn í hugarheim og líðan einstaklings sem þarf að horfa á eftir barninu sínu sökkva dýpra og dýpra í fenið og draga barnabarnið hans með sér.
Mér er ómótt, þreytt og orkulaus. Og ég er þó bara áhorfandi.
Fullorðnir einstaklingar verða að bera ábyrgð á sér sjálfir, hvað svo sem foreldrar gerðu eða gerðu ekki þegar börn þurftu á þeim að halda.
Börn verða að fullorðinum einstaklingum og þá er þeirra líf orðið á þeirra eigin ábyrgð. Æjá ég veit þetta allt saman en ég skil líka þessar björgunartilraunir foreldris.

13. apríl 2005
Frænkur og fleira fólk
Hitti frænkur mínar af öllum stærðum og gerðum í dag.
Hittumst flestar frænkurnar á svæðinu sem eru komnar út af afa mínum og ömmu, ásamt mæðrum nokkurra yngir frænknanna í kaffi hjá einni okkar. Það var bara nokkuð gaman. Gefum okkur lengri tíma næst og vorum þá að hugsa um að hittast í vinnunni hjá einni af örfáum sem ekki komst í dag. Hún vinnur á pöbb í miðbænum!
Svo sá ég fáeinar myndir frá Látrabjargi og Rauðasandi. Mig langar þangað sumarið 2006!
Ella ætlarðu að koma með?
Ok þá er það ákveðið!
Annars er þetta orðinn langur dagur og tímabært að hvíla sig.

11. apríl 2005
Jæja
þá.
Ég er búin að hlaða á mig svo mörgum verkefnum fram til 20.apríl að ég veit ekki hvernig ég á að komast yfir þau.
Tók að mér ágættlega launað 1/2 verkefni sem kallar auðvitað á að verða unnið. Því miður hafa mér ekki boðist nein vel launuð verkefni sem ekki þarf að vinna. Ég auglýsi hér með eftir þeim.
Kláraði yfirlestur og skilaði af mér athugasemdum í kvöld, fundur á morgun og ættingjafundur á miðvikudag + meiri sjálfboðaliðavinna á öðrum stað, það átti að fara í einhvern almennilegan göngutúr á fimmtudag og svo átti helst að klára að ,,skúra, skrúbba og bóna" fyrir London en það er ekki hægt að byrja á því fyrr en þeir sem við ætlum að þrífa eftir klára að flytja. Það eru reyndar 2 mánuðir síðan frumfluttningurinn átti sér stað en það gleymist víst að taka með hluta af húsgöngunum og matinn í ískápnum (ískápurinn gleymdist auðvitað líka) ásamt einhverju smálegu ekki þó neinum tölvum sem ég hefði alveg getað gengið frá fyrir liðið.
Svo er komið að því að endurnýja kortið í ræktinni, ég get ekki komið mér undan því lengur að mæta. Ég var auðvitað með plön um að ganga bara úti í vorveðrinu í staðin fyrir að hanga inni í ræktinni en það varð eitthvað lítið úr góðaveðrinu á tímabili og ennþá minna úr göngnum mínum. Var það ekki ,,vegurinn til helvítis sem var varðaður góðum áformum"? Ég er ábyggilega að verða búin að varða þann veg fram og til baka!

10. apríl 2005
Rétta leiðin
til að komast yfir að gera allt sem mig langar til að gera er ekki sú að gera ekki neitt.
Best að koma sér að verki.
Best að koma sér að verki.
9. apríl 2005
Held barasta að ég
.. nenni ekki að vinna lengur. Búin að gera helling en kannski ekki helling af því sem ég ætlaði mér að gera þegar ég mætti. Nú langar mig heim að prjóna lopapeysu. Ætli ég eigi nógu mikið af hvítum lopa til að geta byrjað.
7. apríl 2005
Fari það og veri
að ég nenni að bauka við það í kvöld að finna mér framlengingarsnúru sem nær úr stofunni og út í bílinn minn. Ég nenniheldur ekki að potast við að setja þetta hleðslutæki sem ég fékk á hann í svarta myrkri og gaddgrimdarforsti, það er alveg af og frá. Hann má vera í fýlu og frosti, rafmagnslaus þarna úti í alla nótt fyri mér.
Ég hirði bara bílinn af dóttirinni í fyrrmálið þó að ég þurfi að fara eldsnemma á fætur og og byrja á að keyra syninum úr miðbænum í Skútuvoginn og svo dóttirinni vestur í bæ.
Var að koma heim af reykfylltu kaffihúsi og það er VOND lykt af fötunum mínum en ég nennti ekki að labba í 4 mínútur í kvöld til að komast á reyklaust kaffihús svo ég get ekki kennt neinum um nema sjálfri mér. Því miður, það er alltaf svo gott að kenna öðrum um. Líka bilaða bíla!
Var boðið í mat í kvöld, fékk steiktan silung sem ég borðaði yfir mig af. Hef aldrei fengið svona góðan silung áður og ætli ég fari ekki í Fylgifiska við tækifæri til að komast að því hvort það er allur matur hjá þeim svona góður.

Bíllinn minn og ég
Bíllinn minn og ég eigum í svona haltu mér, slepptu mér sambandi. Okkur semur ekkert alltof vel en getum ekki án hvors annars verið. Hann er samt í fýlu við mig núna og neitar að fara í gang. Ég ætla að hundsa þessa hegðun hjá honum og fá vinkonu mína til að keyra mér í vinnu klukkan eitt. Fram að þeim tíma verð ég heimavinnandi. Þarf auðvitað að vinna það upp einhvert kvöldið en ,,koma timar koma ráð".
Ég held að bíllinn minn eigi erfitt með að fyrirgefa mér að hafa skilið hann eftir einan og umkomulausan utan við vinnustaðinn minn alla páskana. Ekki það að hann hafi verið alsaklaus af þessu, hann er nefnilega tekinn upp á því að neita að opna bílstjórahurðina innan frá. Hann er meira að segja svo dintóttur að hann opnast stundum og stundum ekki og ekki nokkur leið að átta sig á hvenær honum dettur í hug að opna og hvenær ekki. Af þessu má draga þá ályktun að hann sé ,,hún". En ég lendi oft í vandræðum með þessa dinti og þegar ,,opnarinn" virkar ekki svissa ég á bílinn og skrúfa niður rúðuna til að opna utanfrá. Ef ég er að flýta mér eða þungt husgi mig gleymi ég svo að svissa af bílnum aftur og skil lyklana eftir í honum og það gerðist á miðvikudag fyrir páska. Síðan þá hefur geymirinn verið slappur og greyið ekki rokið í gang á fyrsta starti. Þegar fór að kólna kvartar hann ennþá meira og núna....!
Ég ætla að láta hann eiga sig fram á kvöld en ef það verður ekki rokin úr honum fýlan fær hann hleðslutæki í kvöld og verður í hleðslu alla næstu nótt. Ef það dugir ekki til að koma geyminum í samt lag verð ég sjálfsagt að kaup nýjann. Kaupa eitthvað nýtt handa honum til að koma sambandi okkar í lag aftur! Svei mér þá!

4. apríl 2005
3. apríl 2005
Bráðum kemur betri tíð með sumarfríi
Það var snjór yfir öllu þegar ég vaknaði eldsnemma í morgun og mér fannst það góð afsökun fyrir leti og rúmlegu fram eftir morgni og ekkert göngufæri í snjónum. Fannst reyndar um níuleytið að það væri langur og bjartur dagur framundan og ég gæti gert heilan helling. ,,Morgunstund gefur gull í mund".
Ég gerði brot af þessum helling. Eyddi peningum sem ég átti varla til í föt sem mig vantaði tæpilega (og þó). Kíkti á ferðatorg og hamstraði bæklinga sem ég hef ábyggilega aldrei tíma til að lesa. Fór svo heim og henti helmingnum af fötunum sem voru í fataskápnum og eldaði gæsasteik fyrir Kennarann sem á afmæli í dag. Hann, sonurinn og vinkonan voru svo í mat og það hefur ekki sést svona mikið af fólki hér í marga daga.
Veit ekki hvað af öllu þessu fór illa í mig en ég er búin að vera, ekki ,,eins og útspýtt hundskinn", frekar eins og ..draugur upp úr öðrum draug" síðan ég kom heim úr Smáralindinni, eða bara síðan í morgun þegar ég vaknaði.
Ég kvartaði og kveinaði við krakkana yfir þreytu og leti og leiðindum og að það væri allt of langt fram að sumarfríi en ég fékk enga samúð. Þau bentu mér miskunarlaust á að 20.apríl nálgaðist óðfluga og þá færi ég í frí, ég færi aftur í frí um Hvítasunnuna og sennielgast enn aftur viku seinna.
Að ætla sér að fá vorkun hjá þessum afkvæmum mínum er eins og að ,,fara í geitarhús að leita sér ullar".
Annars er ég svolítið upptekin af málsháttum og máltækjum núna en það er önnur saga sem á upptök á annari síðu.

2. apríl 2005
Er ekki að
nenna þessu.
En veit ekki hvað ég er svo sem að væla, það er fullt af fólki sem þættist hafa það gott ef það hefði mína vinnu og gæti unnið hana eftir sínum hentugleikum.
Ég er nú samt syfjuð!!!!

Vetur
Það er kominn vetur aftur. Ég vona að það sé bara aprílgabb og vorið verði komið aftur í fyrramálið. Ég kann illa við að þurfa að skafa snjó og hrím af bílnum mínum aftur eftir svona langt hlé.
Kíkti aðeins á fótbrotið afmælisbarn áðan og frosk í krukku. Þau höfðu það bæði þokkalegt miðað við aðstæður en afmælisbarnið í gifsinu var ansi þreytt.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)