3. apríl 2005

Bráðum kemur betri tíð með sumarfríi

Það var snjór yfir öllu þegar ég vaknaði eldsnemma í morgun og mér fannst það góð afsökun fyrir leti og rúmlegu fram eftir morgni og ekkert göngufæri í snjónum. Fannst reyndar um níuleytið að það væri langur og bjartur dagur framundan og ég gæti gert heilan helling. ,,Morgunstund gefur gull í mund".
Ég gerði brot af þessum helling. Eyddi peningum sem ég átti varla til í föt sem mig vantaði tæpilega (og þó). Kíkti á ferðatorg og hamstraði bæklinga sem ég hef ábyggilega aldrei tíma til að lesa. Fór svo heim og henti helmingnum af fötunum sem voru í fataskápnum og eldaði gæsasteik fyrir Kennarann sem á afmæli í dag. Hann, sonurinn og vinkonan voru svo í mat og það hefur ekki sést svona mikið af fólki hér í marga daga.
Veit ekki hvað af öllu þessu fór illa í mig en ég er búin að vera, ekki ,,eins og útspýtt hundskinn", frekar eins og ..draugur upp úr öðrum draug" síðan ég kom heim úr Smáralindinni, eða bara síðan í morgun þegar ég vaknaði.
Ég kvartaði og kveinaði við krakkana yfir þreytu og leti og leiðindum og að það væri allt of langt fram að sumarfríi en ég fékk enga samúð. Þau bentu mér miskunarlaust á að 20.apríl nálgaðist óðfluga og þá færi ég í frí, ég færi aftur í frí um Hvítasunnuna og sennielgast enn aftur viku seinna.
Að ætla sér að fá vorkun hjá þessum afkvæmum mínum er eins og að ,,fara í geitarhús að leita sér ullar".
Annars er ég svolítið upptekin af málsháttum og máltækjum núna en það er önnur saga sem á upptök á annari síðu.

Engin ummæli: