28. apríl 2005

Gönguferði á fimmtudegi

Fór í göngutúr í kvöld. Eftir að hafa breytt saumaklúbbnum í göngklúbb hef ég veri að plana að labba hluta af gömlu þjóðleiðinni austur fyrir fjall. Þann spotta sem er fyrsti bíl og hestvagnavegur lagður á Íslandi. Spölurinn frá Litlu Kaffistofunni og að Koviðarhóli. Er búin að finna og ljósrita kort af svæðinu, tína til upplýsingar um eitthvað af örnefnum og draugasögum og er ALLAF á leiðinni þangað- á hverjum fimmtudegi- en aldrei verður neitt úr því. Við þurfum nefnilega helst að fara á tveimur bílum til að losna við að ganga fram og til baka, ekki það að við ættum alveg að ráða við það, þetta er engin óskapa vegalengd en ég er búin að bíta í mig að hafa bíla við báða enda.
Af því við vorum bara á einum bíl í kvöld frestaði ég því eina ferðina enn að skoða Draugatjörn og við röltum Búrfellsgjána í rólegheitum í staðinn. Búrfellssgjáin ,,lengsta og formfegursta hrauntröð á landinu" eins og það er orðað á ýmsum stöðum stóð alveg undir þeim lýsingum og sprungurnar sem skerast þvert á hana eru ótrúlega djúpar, ein af þeim er Vatnsgjáin sem er neðst í Búrfellsgjánni og er sennilega eina vatnsbólið á stóru svæði þarna í hrauninu. Gjábakkarétt og aðrar mannvistarleifar skoðuðum við líka í rólegheitum.
Ég finn sárt fyrir skorti á jarðfræðikunnáttu á svona stöðum en Búrfellsgjáin er ótrúlega löng og breið og það hlýtur að hafa verið magnað hraunflóð sem rann eftir henni á sínum tíma.

Engin ummæli: