Hitti frænkur mínar af öllum stærðum og gerðum í dag.
Hittumst flestar frænkurnar á svæðinu sem eru komnar út af afa mínum og ömmu, ásamt mæðrum nokkurra yngir frænknanna í kaffi hjá einni okkar. Það var bara nokkuð gaman. Gefum okkur lengri tíma næst og vorum þá að hugsa um að hittast í vinnunni hjá einni af örfáum sem ekki komst í dag. Hún vinnur á pöbb í miðbænum!
Svo sá ég fáeinar myndir frá Látrabjargi og Rauðasandi. Mig langar þangað sumarið 2006!
Ella ætlarðu að koma með?
Ok þá er það ákveðið!
Annars er þetta orðinn langur dagur og tímabært að hvíla sig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli