þá.
Ég er búin að hlaða á mig svo mörgum verkefnum fram til 20.apríl að ég veit ekki hvernig ég á að komast yfir þau.
Tók að mér ágættlega launað 1/2 verkefni sem kallar auðvitað á að verða unnið. Því miður hafa mér ekki boðist nein vel launuð verkefni sem ekki þarf að vinna. Ég auglýsi hér með eftir þeim.
Kláraði yfirlestur og skilaði af mér athugasemdum í kvöld, fundur á morgun og ættingjafundur á miðvikudag + meiri sjálfboðaliðavinna á öðrum stað, það átti að fara í einhvern almennilegan göngutúr á fimmtudag og svo átti helst að klára að ,,skúra, skrúbba og bóna" fyrir London en það er ekki hægt að byrja á því fyrr en þeir sem við ætlum að þrífa eftir klára að flytja. Það eru reyndar 2 mánuðir síðan frumfluttningurinn átti sér stað en það gleymist víst að taka með hluta af húsgöngunum og matinn í ískápnum (ískápurinn gleymdist auðvitað líka) ásamt einhverju smálegu ekki þó neinum tölvum sem ég hefði alveg getað gengið frá fyrir liðið.
Svo er komið að því að endurnýja kortið í ræktinni, ég get ekki komið mér undan því lengur að mæta. Ég var auðvitað með plön um að ganga bara úti í vorveðrinu í staðin fyrir að hanga inni í ræktinni en það varð eitthvað lítið úr góðaveðrinu á tímabili og ennþá minna úr göngnum mínum. Var það ekki ,,vegurinn til helvítis sem var varðaður góðum áformum"? Ég er ábyggilega að verða búin að varða þann veg fram og til baka!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli