Það er kominn vetur aftur. Ég vona að það sé bara aprílgabb og vorið verði komið aftur í fyrramálið. Ég kann illa við að þurfa að skafa snjó og hrím af bílnum mínum aftur eftir svona langt hlé.
Kíkti aðeins á fótbrotið afmælisbarn áðan og frosk í krukku. Þau höfðu það bæði þokkalegt miðað við aðstæður en afmælisbarnið í gifsinu var ansi þreytt.
1 ummæli:
Okkur sem fannst svo gaman að fá snjóin aftur, gátum farið út og gert snjókarl. Svo er líka bara gaman að skafa bílinn eða það finnst heimilisfólkinu hér á bæ.
Skrifa ummæli