29. apríl 2005

Endalaust hægt ...

að láta spila með sig.
Ég er farin að skoða skóla á netinu. Fjarnám.
Námsveiki er ólæknandi og ég er að hugsa um að stofna 12 sporasamtök sem taka á þessu vandamáli. Eina skilyrðið fyrir aðild væri að vera með ólæknandi náms- og skólasýki.
Væntanlega yrði að hafa önnur samtök fyrir aðstandendur námsfíkla.

--------------------------------------------
Úr einu í annað.
Fór yfir í Örnefnastofnun og náði í nokkur ljósrit af örnefnaskrám og staðarlýsingum. Þarna svífur yfir vötnunum (hillunum) andi gamalla bóka og grúskara, ég elska svona staði og lykt af gömlum skræðum. Hvers vegna í ósköpunum er ég ekki að vinna við eitthvað sem tengist gömlum skruddum og grúski.
Vantar einvhern aðstoð við heimildaöflun úr gömlum skræðum?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu ekki bara járnlaus eins og ein kona var sem þú þekkir, magnað hvað smá járn í kroppin getur breytt lífinu til hins betir og breytt syfju yfir í orku. Mæli með nokkrum töflum í nokkra dag, veit að þú ferð ekki til læknis til að láta mæla í þér blóðið. Konur á okkar aldri þurfum víst á miklu járni að halda.
Gvo