7. apríl 2005

Fari það og veri

að ég nenni að bauka við það í kvöld að finna mér framlengingarsnúru sem nær úr stofunni og út í bílinn minn. Ég nenniheldur ekki að potast við að setja þetta hleðslutæki sem ég fékk á hann í svarta myrkri og gaddgrimdarforsti, það er alveg af og frá. Hann má vera í fýlu og frosti, rafmagnslaus þarna úti í alla nótt fyri mér.
Ég hirði bara bílinn af dóttirinni í fyrrmálið þó að ég þurfi að fara eldsnemma á fætur og og byrja á að keyra syninum úr miðbænum í Skútuvoginn og svo dóttirinni vestur í bæ.

Var að koma heim af reykfylltu kaffihúsi og það er VOND lykt af fötunum mínum en ég nennti ekki að labba í 4 mínútur í kvöld til að komast á reyklaust kaffihús svo ég get ekki kennt neinum um nema sjálfri mér. Því miður, það er alltaf svo gott að kenna öðrum um. Líka bilaða bíla!
Var boðið í mat í kvöld, fékk steiktan silung sem ég borðaði yfir mig af. Hef aldrei fengið svona góðan silung áður og ætli ég fari ekki í Fylgifiska við tækifæri til að komast að því hvort það er allur matur hjá þeim svona góður.

2 ummæli:

Hafrún sagði...

:p

Fylgifiskar er fiskbúð. Selur kryddleginn silung. En það er sama hvað þú kryddar og mallar það er hráefnið sem gerir gæfumuninn.

Hafrún sagði...

Ég hjóla ekki neitt!
Ef bíllinn minn fer ekki í gang færð þú að keyra mér eða hjóla með mig. Er ekki bögglaberi á hjólinu?