Ég ætlaði eiginlega að dettíðað í kvöld en þegar til kastana kom er ég ekki að finna mig innan um ókunnugt fólk í misjöfnu ástandi svo ég fór heim og sinnti kettinum, gullfiskunum og handavinnunni. Kíkti aðeins á partýið aftur og fann ekki ennþá hjá mér neina löngun til að detta í það, mig langar meira til að vakna útsofin í fyrramálið og fá mér göngtúr upp á einhverja hæðina.
Gamall skólafélagi minn sagði einhverntíma að ég væri mannblendin og opin persónuleiki. Ég er viss um að hann er alveg húmorslaus annars hefði ég haldið að hann væri að gera grín að mér.
Annars er ég frekar pirruð á því hvað þessi dagur lagðist fyrir lítið. Ég gerði ekki nokkurn skapaðan hlut af viti og ég má ekki við því að gera ekkert heilu dagana. Það er 1. maí á morgun og þá eru bara tvær vikur í Hvítasunnu, þá fara tveir vinnudagar í leikaraskap norður á Ströndum og viku eftir Hvítasunnu er meiningin að fara austur á land og vera, helst, í tvær vikur. Ég þarf að bretta upp ermar og fara að gera eitthvað. Annars er þessi síðasta vika sem ég var að leysa af í eh. vinnunni auðvitað búin að skila mér 5 aukasumarfrísdögum en það dugir ekki að eiga sumarfrí þegar enginn leysir mann af og vinnur verkin á meðan. Þetta er gallinn við að vera á mörgum vinnustöðum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli