Það er rigning í London í dag og spá rigningu þar fram á föstudag. Mér er nokk sama ég ætla að vera í London í fjóra daga og njóta þess að gera ekki neitt annað en vera túristi, skoða söfn, búðir, markaði, mannfjöldan, garðana og bjórinn. Svo efast ég nú um að veðurspáin á Yahoo sé miklu áreiðanlegri en íslensku veðurspárnar þannig að ef það er spáð rigningu verður líklega sólskin!
Vinkona mín er að vinna þrefalda vakt þessa stundina og ég hef grun um að þegar hún loksins kemst í frí og eigi að fara að slappa af hrynji hún saman í ofþreytuhrúgu og ég þurfi að fá hjólastól til að drösla henni á milli staða. Annars er mesta furða hvað hún hangir lengi upprétt á þrjóskunni einni saman. Sennilega kann hún ekki annað orðið.
Út á miðvikudag og ég nenni ekki að vinna þessa tvo daga þangað til! Þarf reyndar að kíkja aðeins á þrifaverkefnið okkar það er nokkura tíma vinna eftir þar en hluti af því bíður þangað til við komum heim. Annars sé ég alveg fyrir mér að ég gæti búið í svona húsnæði. Milli þrjú og fjögurhundruð fermetra húsnæði sem er að mestu leyti einn geimur. Það væri flott að hafa 200 fermetra stofu, sófasettið hyrfi í eitt hornið eins og krækiber í Helvíti og restin af stofunni yrði notuð til að læra á línuhjólaskauta. Þegar maður væri búin að læra á skautana mætti rækta frumskóg og fá sér páfagauka. Og auðvitað vera með froskatjörn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli