Sýnir færslur með efnisorðinu Bækur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Bækur. Sýna allar færslur

14. mars 2012

Póstur 14. mars 2012

Ég fékk tölvupóst í morgun, því miður fæ ég sjaldan öðru vísi póst nema það sé gluggi á umslögunum. Ég hef svo sem lítið um hann að segja en hugsa því meira um kreditkortið mitt sem á eiginlega að vera ónotað út mánuðinn.

Hver stenst svona tilboð?

16. desember 2011

Mistök

Ég byrjaði á bók í dag og áttaði með á því eftir 10 línur að mér hafa orðið á mistök. Ég veit nefnilega of mikið um þessa sögu, er búin að heyra og lesa of mikið um hana. Meðal annars hér og hér. Þetta fyrra las ég gegn betri vitund, ég hugsaði með mér að sennilega væri betra að lesa bókina fyrst, svo umfjöllunina og sjá hvort eða hverju ég væri sammála þar. Samt gat ég ekki stillt mig.

Seinni pistilinn las ég í gær og hann bætti svo sem litlu við þær upplýsingar sem ég var þegar búin að fá úr ýmsum áttum en þar er ein bein tilvitnun og meðan ég las þær línur í bókinni í dag leið mér eins og ég væri að borða upphitaða afganga sem allt bragð væri farið úr.

Ég er nokkuð viss um að þetta er góð saga of góð til að hafa eyðilagt kitlandi eftirvæntinguna, spurnina og undrunina sem manni er boðið upp á á fyrstu blaðsíðunni.

Upphafsorðin eru eftir forskriftinni, stutt grípandi setning sem nær athyglinni strax. Framhaldið ætti að leiða mann um stig spurnar um  hver talar, hvern á að óttast, í hverjum býr illskan og svarið ætti ekki að koma fyrr en í annari málsgrein.  Svarið var bara komið fyrir löngu síðan, kannski áður en bókin kom út, ég man það ekki. Mér finnst bara að ég hafi verið svikin um að gleyma mér í lestrinum og að uppgötva smátt og smátt það sem sagan færir manni. Ég held nefnilega að þannig eigi að lesa bækur og það er ástæðan fyrir því að oftast les ég ekki góðar, frægar og umtalaðar bækur meðan þær eru í umræðunni. Mér finnst betra að bíða þangað til lætin eru hjöðnuð svo ég geti lesið bókina ótrufluð af þeim. Lesið hana á mínum og hennar forsendum eingöngu.

Því var troðið inn í hausinn á mér á haustönninni að skáldverk (kannski voru það bara ljóðin sem var talað um) væru samstarfsverkefni skáldsins og lesandans, hvert ljóð er til í jafn mörgum útgáfum og lesendurnir, túlkanirnar eru margir. Ég held að það eigi líka við um skáldsögur. Ef enginn les þær, leggur í þær skiling og túlkar er þá yfir höfðu nokkur saga sögð?

Framvegis reyni ég að krækja framhjá allri bókaumfjöllun þangað til ég er búin að lesa sögurnar. Eftir lesturinn er svo gagnrýni og túlkun annara kærkomin viðbót við minn skilning á efninu.

Svo er bara því við að bæta að mér finnst bókarkápan á Glæsi virkilega glæsileg og ætla að halda áfram lestrinum á morgun.

13. nóvember 2011

Messa

Það fór þó aldrei svo að ég færi ekki í sunnudagsmessu í ár.
Margir af mínum uppáhalds ljóðskáldum og eitthvað af ekki mínum uppáhalds voru að predika á bókamessu í dag og ég dreif mig á staðinn.

Þetta átti að vera verðlaun fyrir frábæra frammistöðu í náminu í gær og í dag en svo ákvað ég að verðlauna mig bara fyrir allt sem ég ætla að gera næstu daga. Annað hvort það eða sitja heima.

Mamma sagði einhvern tíma þegar hún var spurð hvort hún ætti jörðina sem hún býr á að það væri meira svona á hinn veginn. Í dag komst ég að því að sumir dalir eiga líka menn. Sindri Freyson er góður og næst þegar ég kaupi ljóðabók ætla ég að kaupa þá sem hann las upp úr í dag, Í klóm dalalæðunnar. 


Bókin sem ég keypti svo í kvöld eftir upplesturinn heitir Það sem ég hefði átt að segja næst – Þráhyggjusögur og er eftir Ingunni Snædal. 


Báðum þessum ljóðskáldum hef ég „kynnst“ í gegnum íslenskunámið og flestum hinna líka. Merkilegt nokk þá er námið stundum  að skila manni ánægjuefni. 


Ingunn las í dag, og ég ætla að leyfa mér að birta það hér hvað sem „afritun óheimil“ líður:


Hjúkket


stundum
-reyndar bara nokkuð oft-
lenda vinkonur manns 
á þannig séns
að maður kemst ekki 
hjá því að hugsa
sem svo að það
sé nú ekki svo slæmt
að vera ein




og


rómantík


þú heldur mér upp
eins og hornstaur

7. nóvember 2011

Jón

Ég berst við að lesa Skáldsöguna um hann Jón & allt það. Ég bara ræð ekki við leiðindin sem grípa mig þegar ég sé bókina á borðinu hjá mér. Þetta er langt mál um lítið efni og ævisaga Jóns Steingrímssonar rituð af honum sjálfum er síst leiðinlegri aflestrar. Ég náðið í hana á bókasafnið í gær til að bera saman málfar í þessum tveimur bókum.
Ég sé ekkert í Ævisögunni sem bendir til að Jóni heitunum hafi verið tamt að tala um bleikan glassúr eða reykspólandi Kötlur og ég læt svona hluti fara í taugarnar á mér.

Ég átta mig svo sem á að samtími söguhöfundar kemur alltaf í gegn í skáldsögum en mér finnst bara fara betur á að þeir séu ekkert að reyna að fela hann. Skrifi bara sínar bækur með sínu samtíma sjónmiði en séu ekki að skjóta sér á bak við fornlegt málfar sem þeir ráða ekki almennilega við frekar en mannlífslýsingar í sveitum.

Já ég er enn að ergja mig á fjármörkum og lopapeysum þó mér sé sagt að til sé nokkuð sem heiti skáldaleyfi og líka að ég sé eiginlega /einsdæmi, /allavega fádæmi /að láta þetta /fara/  í taugarnar á mér/. Þetta skástrika stílbragð hans Ófeigs finnst mér líka leiðinlegt til lengdar. Ofnotað.
Ég ætla nú samt að klára blessaða bókina og skirfa meira að segja ritgerð um sjónarhorn og persónu sögumanns. Verkefnavinnan knýr mann alltaf til að skoða bækur frá öðrum hliðum en þessum venjulegu „lesa-njóta" eða „lesa-leiðast" hliðum.  Viðfangsefnið verður alltaf áhugaverðara við að rýna almennilega í það.

Lyfjagjöf í fyrramálið, skóli eftir það og Persónusköpun í Textens Mønstre í restina. Ég hef ekki smellt af mynd í marga daga. Það gengur ekki til lengdar.

Til að bæta úr því færi ég ykkur mynd af desktoppnum hjá mér.

13. janúar 2011

Meira af bókum, nú a la Yrsa

Ég er búin að heyra ýmsar reynslusögur manna sem hafa lesið nýjustu bók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, og  passaði mig þess vegna á að byrja lesturinn fyrir hádegi. Ég náði auðvitað að klára fyrir myrkur en samt voru óþægilegir skuggar í ýmsum hornum og dyragættum. Þess vegna lág ég í sófanum þangað til húsið fylltist af fólki en ekki skuggum. 

Strax í öðrum kafla bókarinnar varð ég fyrir vonbrigðum. Sjálfsagt gerði ég mér of miklar væntingar,  eftir að hafa hlustað á upplestur Yrsu í desember, og átti von á einhverju gerólíku fyrri sögum hennar. Forskriftin var svo bara á sínum stað eins og venjulega. Tvær löggur + einn læknir= klassísk þrenning, tvö óskyld mál sem fléttast saman í lokin. Önnur klassísk þrenning og svo framvegis.
Og svo – uppskrift úr kennslubók um skáldsagnagerð. Hvernig á að lýsa persónu án þess að lýsingin komi sem bein predikun  frá höfundi:  Nota t.d. spegil og láta persónuna horfa á sjálfa sig  og hugsa um útlit sitt!  
Æ, nei, hugsað ég, svona á bara að lauma í söguna smátt og smátt alla leið á endastöð í stað þess að leggja hálfa blaðsíðu undir það í upphafi! Svo skiptir þetta heldur engi máli þegar til kastanna kemur. Þetta og önnur svipuð atriði voru að trufla mig til að byrja með en þegar á leið og spennan jókst gleymdist það.  

Yrsu tekst vel að kalla fram gæsahúð og myrkfælni með þessari skáldsögu, ég lagð bókina ekki frá mér fyrr en hún var búin – en það er svo sem ekkert nýtt – og þorði varla að líta í áttina að myrkvuðu stigaopinu sem blast við úr stofusófanum. Ég jafnaði mig þó á þessu fyrr en varði, gekk meira að segja seint í gærkvöld  um  illa lýstan göngustíg við fjöruborðið án þess að hugsa að ráði um sjóblauta ærsladrauga. Nú velti ég frekar fyrir mér rökleysunni í sögunni.
Hryllingssögur um ærsladrauga eru, eðli málsins samkvæmt, ekki trúverðugar en þær hljóta að fylgja einhverri rökréttri hegðun eða framrás og það var ýmislegt í þessari sögu sem uppfyllti  ekki mínar kröfur um eðlilega hegðun afturgangna.  Sem dæmi hefi mér fundist að sjálfsagt að sagan endaði á tveimur draugum en ekki einum. En það er svo sem bara mín skoðun á „eðlilegum“ sjódraugum.  

Mér finnst sem sagt sagna þrælspennandi en held því  þó statt og stöðugt fram að kjörorðið „Ein bók á ári“ bitni á gæðunum. Mér er slétt sama hvað sölutölur segja.
 

4. janúar 2011

Vorverkin í kirkjugarðinum

Eins og ég hef nú gaman að velta mér upp úr lesefninu mínu hérna, nema auðvitað námsefninu, hef ég ekki komið mér að því fyrr en nú að láta ljós mitt skína yfir Furðustrandir. Þó er nærri mánuður síðan ég lagði hana frá mér. 
Ástæðan gæti verið sú að Arnaldur er bara höfundur á því þroskastigi að maður getur ekki annað en kinkað kolli og samþykkt söguna. 

Maðurinn kann klárlega sitt fag, ég stoppaði aldrei í lestrinum og hugsaði eins og svo oft í öðrum sögum, svona talar fólk ekki. Nú eða, ææi, hvað er verið að lýsa endalaust því sem engu máli skiptir. Í Furðuströndum koma aldrei svona augnablik. Ólíklegustu athafnir Erlendar, að næturlagi í sjávarplássum á Austurlandi framkölluðu ekki einn stakan hiksta hjá mér. Oft er maður gagnrýninn á sögusvið sem maður þekkir vel en hér dáðist ég bara að því hvað rannsóknarvinnan var vel unnin. Kirkjugarðshliðið, grenitrén og verkfæraskúrinn allt á sínum stað, allt nema leiðið hans Jakobs –vonandi–.  

Sögupersónur eru sannfærandi, hvort sem það eru sérvitrar grenjaskyttur eða aðrir misfurðulegir karakterar. Annars, þegar ég hugsa málið má kannski setja spurningamerki við sérvitringa og furðufugla. Ég man ekki eftir eini sögupersónu sem er ekki smáskrítin, eða það væri kannski réttara að segja með áberandi sérkenni. Væntanlega er það þó dæmi um góða persónusköpun að ég skyldi ekki staldra við það í lestrinum. Við enn nánari umhugsun þekki ég auðvitað ekki neinn sem er ekki smáskrítinn og a.m.k. örlítið sérvitur á fullorðinsaldri. Sumir fæðast auðvitað sérvitringar, ekki síst ættingjar mínir þarna á Austfjörðum.


Endirinn á þessum þvælingi Erlendar inni á heiðum og fjöllum olli mér talsverðum heilabrotum, hann er svolítið eins og stjórnmálaflokkur fyrir kosningar. Alveg óbundinn og opinn í báða enda.  Furðustrandir, já hvaðan kemur nafnið annars,  er góð saga og Arnaldur er að hefja sig yfir reyfarann. Ég tek undir með þeim sem spá því að hann snúi sér að öðru skáldsagnaformi fljótlega.

Ég á svo öruggleg eftir að hugsa til Erlendar þegar ég fer að setja sumarblóm á leiðin mín í vor, líta  af og til um öxl og horfa upp í kirkjugarðshornið.

26. desember 2010

Saga eftirlifenda

Ég er fantasíufan,  læt þess vegna ekki íslenska fantasíu fram hjá mér fara og bókasafnið bjargaði mér um eintak af Sögu eftirlifenda eftir Emil Hjörvar Petersen.  Sem betur fer, þetta er ekki bók sem ég hef áhuga á að eiga í bókaskápnum og ég bíð ekki í ofvæni eftir framhaldinu. Auðvitað kem ég samt til með að fylgjast með næstu tveimur bókum í þessum boðaða þríleik og ekki síst til að fylgjast með höfundinum.

Þetta er höfundur með feiki nóg hugmyndaflug og skapar hér margar góðar sögupersónur en eftir lesturinn líður mér eins og ég hafi verið að lesa handrit sem bæði ritstjóri og prófarkalesari eiga eftir að koma að.  Því miður.
Íslenskan er í molum, orðforðinn einhæfur og of miklu púðri eytt í ýmislegt sem mætti að skaðlausu missa sig og tækifærum til að leggja áherslu á ýmsa sérstöðu  sleppt í staðinn.

Í stað þess að leiða lesandann að öllu leyti inn í sjónarhorn Haðar –sem hefur reyndar ekki sjónarhorn heldur heyrnar og lyktarhorn– er byrjað, trekk í trekk að lýsa sögusviðinu sjónrænt. Einmitt þetta sjónarhornsleysi Haðar gefur gott tilefni til að leiða lesandann inn í hans heim. Ég sem lesandi hefði oft viljað fá að dvelja lengur við upplifanir  blinda ássins á umhverfinu þegar höfundur spillti því með margorðum útlitslýsingum sem skiptu svo sem engu máli í verkinu. Höfundur á að hafa ótal leiðir til að koma á framfæri við lesandann þeim sjónrænu upplýsingum sem hann telur að eigi erindi við hann. Til þess á ekki að þurfa lýsingu á smekk sögupersónu fyrir innanhússhönnun. 

Ég verð að viðurkenna að þegar ég var komin rétt fram yfir blaðsíðu 200 var mér farið að leiðast þófið og fór fljótlega eftir það að lesa bara aðra hverja blaðsíðu. Ég náði auðveldlega því sem máli skipti í söguþræðinum með því móti.

Vonandi verða næstu tvö bindin í þessu verki betur unnin því höfundur hefur allt til að bera til að skrifa góðar sögur.

8. desember 2010

Fleiri bækur

Ég er að hugsa um að undirbúa enskuáfangann og panta mér nokkrar bækur allavega eina eftir Neil Gaiman, svo ræðst það hvort mér tekst að klára hana. Já og hinar fjóra sem ég ætla að panta líka.

7. desember 2010

Áskrifandinn

Í kæruleysiskasti ákvað ég að gerast áskrifandi að tímariti. Tölublaðið kostar 3.000 krónur, ég er eftir að reikna út kílóverðið sennilega er það svipað og á harðfisknum. Harðfiskur er þjóðlegur mælikvarði á verðmæti, hann er næringarríkur og hélt lífi í þjóðinni ásamt sauðakjöti og mysu. Svo, þegar íbúar skersins höfðu nóg af harðfiski og súrmat gáfu þeir sér tíma fyrir sagnaritun.  Nú nærumst við á transfitu og próteindufti en höldum áfram að skrifa, sum bara þokkalega vel.  

Ég fékk Stínu þetta tímarit um bókmenntir og listir inn um bréfalúguna í dag,  tbl. 2/2 2010. Guðbergur tekur hraustlega upp í sig í ávarpi til lesenda, ég held annars að hann sé kominn í gírinn „allt var betra áður fyrr“, sennilega lendum við öll í því þegar við eldumst. Gaman að þessu engu að síður eða einmitt þess vegna.  

Í samanburði [við gamla ameríska formið] er glæpasaga okkar tíma bull sem gerir lítið annað en að leysa árstarsöguvelluna af hólmi. Hún er skrípi með stimpil heimsbókmennta fengnum hjá blaðamannabjánum, fjölmiðlakjánum, gagnrýnendum og bókmenntafræingum sem reyna að drepa ritlistina með blaðri...(Guðbergur Bergsson)   (ef þarna eru stafsetningar eða innsláttarvillur dæmast þær á mína fingrafimi). Þegar ég las þetta áttaði ég mig á að ástarsögugeirinn í bókaútgáfu er nærri því horfinn. Nema svona ástarmorðsögur, ég meina, það er heilmikil ástarsaga í Karlar sem hata konur.
Hvernig er það annars með bókatitla, beygir maður eða beygir maður ekki. Í Körlum sem hata konur eða í Karlar sem hata konur? Hér er minni menntun greinilega ábótavant. 

Einhverntíma fyrir löngu, svo löngu að það gæti hafa gerst í fornu ævintýri, keypti ég mér ljóðabók eftir Matthías Johannessen. Mér fannst hún leiðinleg og hef ekki keypt eða nennt að lesa neitt eftir hann síðan. Lengi býr að fyrstu gerð segir einhverstaðar. Í þessu blessaða tímariti eru svo þrjú ljóð eftir Mattías og mér til undrunar gera þau mér bara hæfilega til geðs. Hef ég þroskast, eða Matthías? Kannski bæði.

 . . .
Dauðinn verndar vel sín leyndarmál
og vistar þau sem hvítan sinureyk
og þegar kulnar glóð við gamalt bál
og gleymskan snarkar enn við brunnin kveik

þá týnist hún, þín ævi i ösku og sót,

en lifið er þó einkum stefnumót
og oddhvasst hik við dauðans
                                 kompásnál.
Matthías Johannessen

Ég hef lesheimild á þetta blað þó ég sé í skáldsögubanni í heila viku. Já, og ævisögubanni og allrahanda sögubanni. Bara alveg bannfærð!

29. nóvember 2010

Englalestur

Christopher Volgler segir að í sameiginlegt einkenni allra sagna sé að söguhetjunni sé sparkað nauðugri af stað úr sínum venjulega heimi út í ævintýrið eða atburðarrásina.

Í sögu Árna Þórarinssonar, Morgunengill er gömul kona sem rausar og rausar í anda heimsósómakvæðanna og mjakar Einari blaðamanni út af morgungöngu sinni. Síðan hefst sagan samkvæmt forskriftinni. Ég nennti ekki að kortleggja ferðina gegnum „ævintýrið“ til að skilgreina  mentora, verði eða aðra eðlisþætti í ferðalagi hetjunnar frekar.  Ég sneri mér frekar að því að klára „snöggvast“ bókina.

Trosnaður kaðall sem hlýtur að koma saman í hinn endann hugsaði ég einhverstaðar í lestrinum og reyndi að sjá fyrir mér hvernig allir þessir þræðir kæmu saman. Þeir hljóta að tengjast einhverstaðar hugsaði ég, en hvað ætli sé hægt að teygja það langt og ætli þetta séu ekki full margir þræðir. Ég hugsa enn um það, hefði ekki verið betra að sleppa einum örþræði?

Í lokin spunnust tveir þræðir saman, þriðji og fjórði voru alsendis óskyldir þeim, held ég, nema mér hafi yfirsést eitthvað þegar ég hraðlas.  Jú, ég var farin að hraðlesa ýmsar efnisgreinar, ég nenni ekki að lesa siðferðilegar vangaveltur um hrun, útrásarvíkinga og auðmenn Íslands. Ég hef ekki farið varhluta af þessari orðræðu í blöðum, á bloggsíðum, í ljósvakamiðlum og manna á milli og ég bara nenni ekki að lesa þetta líka í afþreyingarbókmenntum.

Rithöfundar mættu mín vegna nota bara setningar eins og „Alvarlegir ræddu þeir um siðferðisbresti athafnamanna meðan þeir biðu eftir, kaffinu, símanum, matnum eða hverju sem var“ og láta það duga. Bara ekki skrifa löng samtöl, eða stutt, um þessar vangaveltur og eitt svona er nóg á hverjum 150 blaðsíðum.

Það sjónarhorn hvernig óvarleg umræða og ofsi fullorðinna getur farið með sálarlíf barnanna í því árferði sem ríkir og hefur ríkt á Íslandi í rúm tvö ár er athyglisverðasti hluti sögunnar. Sá hluti vekur lesandann líka milklu frekar til umhugsunar um hörmulegar afleiðingar  íslenska hrunadansins en siðabollaleggingar söguhetjunnar.
Siðapostulinn gægist viða fram á blaðsíðum Morgunengils, mín vegna má spara hann í reyfurum. Að því frátöldu var þetta ágætis afþreying.

Já og ég verð eiginlega að taka það fram að höfundi tókst að koma mér verulega á óvart í lokapin  í þræði eitt, nei annars þræði tvö eða var það...? Nú er ég að tapa þræðinum. 

26. nóvember 2010

Neil Gaiman

Neil Gaiman er höfundur sem mér var bent á fyrir stuttu.  Ég sé fram á skemmtilega tíma með honum í framtíðinni og sennilega mikla æfingu í ensku.





Ef þið skylduð lenda inn í ævintýrið er gott að hafa þetta í huga.


Instructions
by Neil Gaiman

Touch the wooden gate in the wall you never saw before.
Say "please" before you open the latch, go through,
walk down the path.
A red metal imp hangs from the green-painted front door, as a knocker,
do not touch it; it will bite your fingers.
Walk through the house. Take nothing. Eat nothing.
However, if any creature tells you that it hungers, feed it.
If it tells you that it is dirty, clean it.
If it cries to you that it hurts,
if you can, ease its pain.
From the back garden you will be able to see the wild wood.
The deep well you walk past leads to Winter's realm;
there is another land at the bottom of it.
If you turn around here,
you can walk back, safely;
you will lose no face. I will think no less of you.
Once through the garden you will be in the wood.
The trees are old. Eyes peer from the under-growth.
Beneath a twisted oak sits an old woman. She
may ask for something; give it to her.
She will point the way to the castle.
Inside it are three princesses.
Do not trust the youngest. Walk on.
In the clearing beyond the castle the twelve
months sit about a fire, warming their feet, exchanging tales.
They may do favors for you, if you are polite.
You may pick strawberries in December's frost.
Trust the wolves, but do not tell them where you are going.
The river can be crossed by the ferry. The ferry-man will take you.
(The answer to his question is this:
If he hands the oar to his passenger, he will be free to leave the boat.
Only tell him this from a safe distance.)
If an eagle gives you a feather, keep it safe.
Remember: that giants sleep too soundly; that
witches are often betrayed by their appetites;
dragons have one soft spot, somewhere, always;
hearts can be well-hidden,
and you betray them with your tongue.
Do not be jealous of your sister.
Know that diamonds and roses
are as uncomfortable when they tumble from
one's lips as toads and frogs:
colder, too, and sharper, and they cut.
Remember your name.
Do not lose hope — what you seek will be found.
Trust ghosts. Trust those that you have helped to help you in their turn.
Trust dreams.
Trust your heart, and trust your story.
When you come back, return the way you came.
Favors will be returned, debts will be repaid.
Do not forget your manners.
Do not look back.
Ride the wise eagle (you shall not fall).
Ride the silver fish (you will not drown).
Ride the grey wolf (hold tightly to his fur).
There is a worm at the heart of the tower; that is
why it will not stand.
When you reach the little house, the place your journey started,
you will recognize it, although it will seem
much smaller than you remember.
Walk up the path, and through the garden gate
you never saw before but once.
And then go home. Or make a home.
And rest.

Svo er hér annar upplestur með flottari myndum en eiginlega finnst mér fyrri lesturinn betri.  En hér eru íslenskar myndir, það kitlar þjóðrembuna og því flýtur þetta með. 


7. nóvember 2010

Eyru ljónsins

Þórunn Erla Valdimarsdóttir skrifaði skáldsögu um Laxdælumál hin nýrri. Það má víst ekki lesa hana hratt og kannski hef ég lesið of hratt. Ég finn ekki samhengi í titli og sögu.
Skemmtileg hugmynd, skemmtileg saga og skemmtilegur stíll. Samt tafði stíllinn mig oft og of mikið  við lesturinn. Stundum flaug hann líka of hátt og stundum gafst ég upp eftir að hafa lesið sömu setninguna þrisvar og án þess að skilja. Svo skildi ég ekki heldur hvernig er hægt að fara bæði Hellisheiði og Þrengslin á leið sinni austur fyir fjall. Kannski þurfti ég bara að lesa 4 sinnum til að sjá samhengið. Ég nennti því ekki, ekki heldur að pirra mig mikið á þessari einu villu sem ég sá en prófarkalesarinn ekki. Heilaþoka dregur líka úr skilningi, mínum sko, ég veit ekki með prófarkalesarann. 
Ætli ég verði ekki að rifja Laxdælu upp einhvern daginn, það eru áratugir síðan ég las hana og ég er ekki ein þeirra sem lesa bók og rafboðin líma vitneskjuna í minnissellurnar.
Ég þekkti einu sinni gamlan mann sem var þeim hæfileika gæddur. Sveitungi hans sagðist hafa setið undir réttarvegg með öðrum krökkum og hlustað á hann endursegja Kapítólu. Þessi hæfileiki var það eina sem hann hafði og hann var ófær um að bjarga sér í hversdagslífinu, öll þrjú systkinin voru ófær um það. Í einhverri bók Þórbergs segir að það hafi verið hamingjusöm kona í Suðursveit sem veifaði yfirvaldinu þegar það reið hjá. Yfirvöldin eru ekki alltaf hliðholl smælingjunum. Ég þarf sennilega að lesa Þórberg líka einhvern daginn. Kannski er ég líka búin að segja þetta síðasta oft, ég er gleymin, en ég var víst búin að minnast á það áður. Einu sinni eða tvisvar.

Í dag skilaði ég tölfræðiverkefni, las góða bók, hnerraði, hóstaði og átti erfiðara með að fara niður stigann en upp hann.
Stiginn er orðin viðmið í lífinu, mælikvarði líkamlegs ástand konunar sem ver stórum hluta lífsins í kjallaranum.

15. október 2010

Bókmennta og kartöflubökufélagið

15.10.2010
Ég byrjaði á Bókmennta og kartöflubökufélaginu i gær, hér efti skammstafað B&kf, og nú velti ég vöngum yfir sjónarhorni höfundar, hvernig hann kynnir persónurnar inn í söguna og hvernig karakterinn er látinn mótast í huga lesendans.
Ég er mjög hrifin, svo mjög að ég er að treina mér lesturinn svona eins og ég gerði með lakkrísrörin mín þegar ég var unglingur. Sumt er of gott til að gleypa það í einum bita. (nú er Bleik brugðið segi rmáltækið! Ég að geyma sögu.

6. september 2009

Á Kjalveg yfir Arnarvatnsheiði

Ég eyddi lunganum úr laugardeginum í að þræða torfæran tröllaslóða frá Arnarvatni um Stórasand yfir á Kjalveg. Við ferðafélagarnir vorum sammála um að Stórisandur ætti frekar að heita Stórgrýtissandur og aðra eins endalausa tröllaslóða hef ég hingað til ekki keyrt. Þarna þrælaðist ég á bílnum á 10 til 15 km. hraða klukkutíma eftir klukkutíma. Þegar bjartsýnin tók völdin við það að færðin gaf færi á að taka bílinn úr lága drifinu og skipta upp í annan gír var hún fljótt barin niður af mikilli harðneskju þegar nýir og nýir hraunásar og stórgrýtisfarvegir tóku við aftur. Og ekki nóg með að slóðinn væri þakinn stórgrýti heldur var hann líka svo þröngur að ég þakkaði mínum sæla fyrir að vera á mjóum bíl.


Allt hafðist þetta þó að lokum og við komumst í Hveravelli um áttaleytið á laugardagskvöldið. Það var reyndar á þeim tíma sem við ætluðum að vera búin að koma okkur fyrir grilla, borða, vaska upp og vera sest í heitapottinn. Þetta var allt nokkuð á eftir áætlun.
En svona eiga jeppafeðir að vera, við villtumst aðeins, biluðum aðeins, tvö dekk sprungu og því miður á sama bílnum. Hann komst samt til byggða, þökk sé tappasettum í farangri og laghentum viðgerðarmönnum. Við hin komumst líka öll til byggða þó áætlunin gengi öll úr skorðum en það tilheyrir líka góðum ferðum og ef mér stæði til boða að fara inn á fjöll aftur á morgun tæki ég því fegins hendi.