16. september 2013

Í Árnagarði

Z–a í lesaðstöðunni í Árnagarði leiðir af einhverjum ástæðum hugann að þeim andans manni Jóni Helgasyni sem orti um z-u sína í Árnasafni  fyrir örfáum áratugum.  Z-etum okkar Jóns ekki saman að jafna, tengingin við Árna Magnússon er eiginleg eini samnefnarinn en í mínum sporum hefði hann þó ekki verið í vandræðum með að skella saman brag um z-una í kuldatrekknum í lesaðstöðunni.
Hér er  aðstaðan í andyri fyrstu hæðar og þegar kólnar á haustin streymir kalda og hreina loftið inn um dyrnar með þeim straumi stúdenta sem koma og fara í og úr tímum og í og úr kaffistofunni inn af anddyrinu.  Á vegg ofann við borðið sem ég álpaðist til að setjast við með námsefnið er upplýsingaskjár og þegar fólk staðnæmist við borðsendann og starir fram fyrir sig er ég aldrei viss hvort það er að glápa á mig eða skjáinn ofan við höfuðið á mér.

Til að einangra mig frá hælaskellum, ræskingum, hósta, tali og öllum þeim klið og áreiti sem fylgir umferð  fólks á svæðinu kemur tónhlaðan (ipodin) í góðar þarfir og á lagalistanum (playlistanum) er óskipulagt  úrtak úr ýmsum áttum, Bubbi, Cohen, Ramstein, Skálmöld og Hjaltalín glymja í eyrunum á mér í tilviljunarkenndri röð.   Það dugir þó að mestu leyti til að ég nái að einbeita mér að Principles of Linguistic Change. Nú er ég nefnilega búin að setja fram kenningu um að ef ég sit í skólanum með lítið annað en námsefnið  haldi ég mig við það í stað þess að fara út um víðan völl (lesist æði úr einu í annað).  Nú þýðir ekkert að reyna að fá mig til að sinna vinnu, ég hef engin tök á því og uppvask, ryksugan, þvotturinn og áhugavert lesefni um miðaldabókmenntir er utan míns seilingarfæris. Það er internetið þó ekki og því upplagt að tjá sig aðeins um þessa upplifun.  Það má reyndar draga ýmsar ályktanir af þessari síðustu  upptalningu m.a. hvers vegna höfundur hennar er ekki að yrkja ódauðlega ljóðabálka um veru sína innan múra Árnagarðs. 

Innan við múrvegginn átti ég löngum mitt sæti,
utan við kvikaði borgin með gný sinn og læti;
hálfvegis vakandi, hálfvegis eins og í draumi
heyrði ég þungann í aldanna sígandi straumi.
                    –   –   –
(Jón Helgason) 

1 ummæli:

ellan sagði...

Hugsaðu þér hvað það væri þægilegt ef ég gæti ýtt á like takka þegar ég álpast hér inn (daglega)....