15. október 2010

Bókmennta og kartöflubökufélagið

15.10.2010
Ég byrjaði á Bókmennta og kartöflubökufélaginu i gær, hér efti skammstafað B&kf, og nú velti ég vöngum yfir sjónarhorni höfundar, hvernig hann kynnir persónurnar inn í söguna og hvernig karakterinn er látinn mótast í huga lesendans.
Ég er mjög hrifin, svo mjög að ég er að treina mér lesturinn svona eins og ég gerði með lakkrísrörin mín þegar ég var unglingur. Sumt er of gott til að gleypa það í einum bita. (nú er Bleik brugðið segi rmáltækið! Ég að geyma sögu.

1 ummæli:

elina sagði...

Mögnuð bók hvorki meira né minni. Ég vona að þínar bækur komi til með að virka svona á mig !!!