26. ágúst 2011

Föstudagur

Ég bauð kettinum góðan dag og spurði hvað hann hefði gert skemmtilegt meðan ég skrapp til tannlæknis. Kötturinn svaraði með því að draga að sér andann í djúpum geyspa. 
Skrítið hvað er oftast tíðindalítið á þessum bæ. 

Það er svo lítið í fréttum að það gæti dugað í hæku. Sautján atkvæða frétt dagsins!

Meðan 2 ég 1 skrapp 1 
til 1 tannlæknis 3 geyspaði 3 kötturinn 3 þrisvar 2.

Þarna vantar eitt atkvæði (þarf að telja aftur) og að raða rétt í línur. 
Á ekki að vera 5-7-5, mig minnir það.  

 


Engin ummæli: