Í einhverju leiðinda kasti í stofusófanumí sumar byrjaði ég aftur að spila tölvuleiki á Facebook. Ég lofaði mér því að hætta þegar skólinn byrjaði. Ég held svei mér þá að ég þurfi að hætta því fyrr og snúa mér að uppbyggilegri málum s.s. að skrifa bloggpistla og gera ljósmyndsögur klárar til birtingar.
Á morgun þarf ég að nýta mér byrinn sem verður til með steraáti og laga til í vinnumálum. Verst hvað það er auðvelt að eyða tímanum í e. annað.
Á morgun segir sá lati.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli