Dagurinn brast á með, minnisleysi, ráðaleysi, aðgerðarleysi, andleysi og áhugaleysi. (Upptalning er stílbragð)
Ég pakkað nú samt föggum mínum og komst með herkjum (eftir að hafa snúið við, sótt veskið, tekið olíu og náði í Handbók um málfræði á Klepp) í Þjóðarbókhlöðuna.
Í dag ætlaði ég sko að sitja við frá morgni til kvölds og velta fyrir mér sögumanninum og persónunni Jóni og hans bleika glassúr, í frásögninni af heilögum Kristófer. Þegar ég svo opnaði tölvubakpokann voru í honum ýmis blöð og gagnlegar bækur en engin tölva. Rafmagnssnúran og músin voru þar nú samt, þetta var ekki algleymi.
Ég notaði enn og aftur gamla lagið, blað og blíant og það fylgir þvi afskaplega notaleg tilfinning að handleika pappír og skriffæri við svona íþrótt. Mig vantaði bara blekbyttu og fjaðurpenna. Ég er samt ekki frá því að afköstin hefðu verið meiri með tölvuna á borðinu og skriftin í stílabókinni er ekki eins áferðarfalleg og sú sem er á myndinni hérna fyrir neðan. En þetta er nú líka skriftin hans Jóns. Jóns Sigurðssonar sko, ekki Jóns Steingrímssonar. Ég er nú samt með sýnishorn af henni líka.
1 ummæli:
hahahahaha..... þú ert ekki í lagi!
Skrifa ummæli