21. nóvember 2011

Ýlir

Ýlir ber er byrgist sólin
brosa stjörnur, koma jólin.


Ýlir byrjar í dag en hann er annar mánuður vetrar samkvæmt gamla norræna tímatalinu. Hann hefst á mánudegi í fimmtu viku vetrar á tímabilinu 20. til 27. nóvember.


Á veraldarvefnum finn ég engar vísur, þjóðsagnir eða þjóðtrú sem tengist þessum mánuði og enginn virðist hafa látið heita þessu nafni. Ég fór nú reyndar ekki í þjóðskrá til að athuga það, ég geri það næst þegar ég á leið í bankann. 
Vísubrotið hérna fyrir ofan rakst ég þó á síðu sem virðist að mestu aflögð.


Ýlir tekur við af gormánuði og í tilefni þess að gormánuði er nú lokið kemur hér mynd af fáeinum ám lifðu þann mánuð af. Ég hitti þær þegar ég rölti niður að Lónakoti um daginn, þær biðu eftir gjöfinni og fannst ég líkleg til að vera með tuggu. Ég brást þeim, blessuðum.  











Vísubrot um Ýli er úr kvæði um mánuðina af http://www.itn.is/~kaldalon/manudir.htm en þar segir:
(Arnþrúður Kaldalóns fór með kvæðið svona þann 1.1.1996.)




Engin ummæli: