19. nóvember 2011

Krókaleiðir heilags Kristófers

Þessi mynd birtist í Mánudagsblaðinu þegar ég var rétt ný orðin fimm mánaða. Ég var ekki að spá í hausttískunni þá og heldur ekki núna –ég var bara að leita að heimildum um heilagan Kristófer– en mér fannst textinn svo innilega hreinn og beinn að ég mátti til með að fá þetta lánað. 

Myndin er af þverröndóttu pilsi, fyrir grannvaxnar  konur, en efnið er úr ull. Peysan er ermalöng en þetta er hin ákjósanlegustu haustklæði. 


Hér er ekkert verið að reyna að blekkja stórvaxnar konur. Einfalt og skýrt, „Þið þarna feitu, ekki láta ykkur detta í hug að fara í svona."

Engin ummæli: