28. nóvember 2011

Verkefni, próf og netfælni

Það styttist í próf og ég hef sára þörf fyrir að byrja á próflestri. Fyrst þarf ég samt að skila tveimur verkefnum en það virðist vera sama hvað skilum er frestað oft og lengi, ég næ aldrei að klára á þeim tíma sem ég ætla mér.
Ég held a ég hætti svo að opna Facebook, þar blasir við niður allan skjáinn orð eins og prófkvíði, próf, próflestur, verkefnaskil, lokapróf, próf, próf og aftur próf. Það velur mér kvíðaköstum og andateppu.
Þetta er svo sem ekki sjúklegt ástand, bara óþægilegt og það tekur ekki enda fyrr en að kvöldi 8.des.
Þangað til bíð ég ykkur vel að lifa.

Engin ummæli: