7. nóvember 2011

Hrollur

Það er hrollkalt i húsinu, kötturinn situr innan við lúguna og horfir á hana sveiflast, skríður svo upp í sófahornið og hniprar sig saman. Ég fer að dæmi hans nema ég næ ekki þessari mjúku sveigju á hrygginn. Hráslaginn læðist inn um gluggana með grárri birtunni og viðarkamína eða arin væri vel þeginn.



Í hráslagalegu rigningarveðri í júní var hægt að orna sér framan við kamínuna í Breiðuvík. Einn margra kosta við skálavörsluna

Engin ummæli: