3. nóvember 2010

Skókassar

Á hverju ári ætla ég að setja eitthvað í skókassa og taka þátt í jólagjafasöfnun KFUM og K en á hverju ári er ég of sein að gera ráðstafanir.
Núna velti ég því fyrir mér hvað henti í skókassan fyrir aldursbilið 15-18 ára og hvort ég hafi nú úthald til að fylgja málinu eftir fyrir laugardag.

Heilsan er ekkert til að hrópa húrra fyrir. En ég er hvort sem er lítið fyrir húrrahróp.

1 ummæli:

bjarney sagði...

Sama hér - flaska alltaf á skókössunum. Annars fór ég líka á tónleikana síðasta fimmtudag og líkaði vel. Vonandi batnar heilsan!
Kveðjur
bjarney