15. maí 2010

Saga á sögu ofan

Hér er lítið talað enda hef ég bara of mikið að gera við að hugsa um sögu Íslands og umheimsins frá 1789 til árþúsundamóta og jafnvel lengur. Kvennabarátta frá upphafi til nútímans, Rauðsokkur, Úur og Feministinn, heimildaleit, heimildalestur, fyrirlestrar og dagbókarskrif, fréttalestur og umfjöllun um fréttir halda mér við efnið frá morgni til kvölds. Verst að stærðfræðin er svo gjörsamlega dottin úr kortinu að ég held ég þurfi að íhuga endurupptökuprófið strax.
Þetta er alveg meiriháttar gaman og af því nú er veðrið of gott til að sitja inni ætla ég með gamaldags stílabók og blýant úr í garð og skrifa dagbók um lesefni vikunnar upp á gamla mátann.

Engin ummæli: