12. maí 2010

Of mikið af því góða

Ég á að fylgjast með fréttunum, greinum, bloggi eða öðrum fréttamiðlum þennan mánuðinn og fjalla um eins og tvær fréttir í viku og tengja þær við Sögu íslands og umheimsins frá lokum 18. aldar til árþúsundamóta. Ég hef úr of miklu að velja núna og er að hugsa um að fylla fréttakvótann bara í þessari viku. Já, það má.
Lokuð opin réttarhöld í Héraðsdómi Reykjavíkur/mannréttindasamþykktir 1789 og 1948.
Mótmæli á Haíti/mótmæli í Frakklandi t.d. 1871
Eiríkur í Silfri Egils/þjóðernishyggja sjálfstæðisbaráttunnar
Grænland og norðurheimskautið/nýlenduherrar 17. 18. og 19 aldar.
Tor mótmælir við Héraðsdóm/Þjóðfundurinn 1851
og fleira og fleira, endalausar fréttir þessa dagana og ekkert er svo sem nýtt undir sólinni.
Ég hef aðeins spá í umfjöllunarefni bókarinnar í söguáfanganum hvort umheimurinn nái bara til Evrópu og aðeins til fyrrverandi nýlendna Evrópuríkjanna.

Ætla svo á tónleika í kvöld og geyma öll söguverkefni til morguns.

Engin ummæli: