fer í að vinna upp leti gærdagsins. Ég þarf að sinna þessari örvinnu minni og setjast svo niður og hugsa fréttir í sögulegu samhengi.
Leit að sögulegu samhengi fréttar Ríkisútvarpsins um Grænland færði mér upp á tölvuskjáinn grein eftir Einar Ben. Þar með er ég komin með blaðagrein sem hægt er að tengja við umfjöllun námsbókarinnar um þjóðernishyggjuna og í framhaldi af henni má skoða viðtalið við Eirík Bergmann í Silfri Egils á dögunum.
Verst ef ég klára nú fréttakvótann í fyrstu viku sögulotunnar.
Svo þarf ég að taka klukkutíma göngu og svo er vorið að banka upp á og benda mér á garðana ,,mína" sem þurfa á sumarundirbúiningi að halda.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli