3. maí 2010

Eftirköst helgarinnar

Rúgbrauðið varð sætar en jólasmákökur, skólaseta og fellaganga setja sitt mark á þreytustuðulinn (þetta rímar svo vel við breytustuðulinn og ég þarf að setjast við stærðfræðina fljótlega), að öðru leyti er allt í sómanum.
Ég þarf að raða útsæðiskarftöflunum til spírunar (eitt eða tvö n?) sinna náminu sem er aldeilis að vinda upp á sig þessa dagana og nú er það á umfjöllun um tvær sögutengdar fréttir og ein til tvær dagókarsíður um námsefnið í hverri viku. Það við bætist tvær safnaferðir og 10 síðna rannsóknarritgerð á næstu fimm vikum. Sagan stefnir í að verða mjög skemmtilegur áfangi, verst að þurfa að sinna stærðfræði samhliða henni.
Þetta kallar allt saman á að ég standi upp úr sófanum, fari með tölvuna að vinnuborðinu og hætti að lesa bloggsíður.

Mér var bent á nám í textíl sem Myndlistarskóli Reykjavíkur ætlar að vera með í haust, áhugavert nám og mér varð hugsað til konu sem ég þekki og býr á Seltjarnarnesinu. Textíll rímar alveg við hennar áhugasvið.

Engin ummæli: