Einu sinni fyrir, ekki svo endur fyrir löngu fengum við Sjúkraliðinn okkur göngutúr upp á eitt af þessum átta Helgafellum landsins. Þetta var á sólríkum, lognkyrrum 1. maí morgni og einn af þessum dögum sem lifir í minningunni af því lífið var ljúft eins og það er oftast þegar maður gefur sér tíma til að lifa því.
Ég man eftir góðum göngutúr, góðum félagsskap, hlýju sólskininu, fuglunum sem trúðu á vorkomuna og ég man nærri þvi eftir gróðurangan í loftinu. Þetta síðasta er auðvitað truflun á heilastarfseminni því það er lítill sem enginn gróður á leiðinni upp á Helgafell sunnan Hafnarfjarðar og þessir fáu geldingahnappar sem vaxa á þeirri leið voru ekki farnir að grænka þá frekar en nú.
Síðan þetta var eru liðin nokkur ár og flest þeirra hafa verið gigtarár og ég ekki fær um að ganga nema upp að Helgafellinu og aftur til baka. Samt er það einhvern veginn svo að mig langar alltaf til að endurtaka þessa vorgöngu. Jólin eru 24. des, nýjársdagurinn 1.jan, afmælið mitt 20. mars og Helgafellsdagurinn 1. maí. (Þessi upptalning minnir mig á að mörg undanfarin ár hef ég fengi upphringingu með afmælissöng 20. mars en núna fékk ég ekki einu sinni sms og mér fannst það miður. Útúrdúr ég veit, ég er bara svo gleymin að sumt þarf ég að setja í letur meðan það hangir enn inni.)
Í dag er 2. maí og 120 dagur ársins ef mér skjöplast ekki. Það þýðir að ég er búin að fá mér 117 göngutúra það sem af er árinu því ég hef ekki sleppt úr nema 3 dögum. Tvisvar hef ég verið komin undir sæng þegar ég mundi eftir göngudagsskipuninni og nennti þá ekki að rjúka upp úr volgu rúminu og hlaupa út. Álíka oft hef ég samt klætt mig aftur og rölt úr í myrkrið en einu sinni var ég of lasin til að paufast úr í náttmyrkrið.
Í tilefni af þessum daglegu afrekum mínum, batnandi þreki og heilsu og því að 1. maí er nýliðinn ákvað ég að reyna aftur við Helgafellið í dag.
Ég fór upp og aftur niður, það var ekki neitt sérstaklega erfitt núna þó það væri ekki eins auðvelt og hér áður fyrr en nóttin í nótt og næstu nætur leiða svo í ljós hvernig skrokkurinn bregst við þessu.
Ég vil helst fara aftur þarna upp áður en ég legg veg undir dekk til austurs.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli