19. maí 2010

Hundfúlt

Ég leitaði lengi að fyrirsögn á þennan pistil minn og eftir að hafa gefist upp á að finna hnittna, gáfulega og lýsandi setningu ákveð ég að vera hreinskilin. Þetta er bara frámunalega, hundfúlt og það á hundlausum bæ.
Ég klikkaði á að skila stærðfræðiverkefninu í gær. Ég hélt að það væri opnaði fyrir verkefnaskil í dag. Þetta er ekkert stórmál fyrir lokaeinkun, verkefnið gildir bara 10% af þessum 40% sem verkefnaeinkun gildir, það er bara brot á grundvallarsiðferði að skila ekki verkefnum.
Hundfúlt og ekki meira um það að segja.

Engin ummæli: