Ég er mætt í sauðburð en er ekki að sinna honum, ég tel sjálfri mér trú um að ef ég setjist nú við tölvuna NÚNA geti ég lært alveg helling og kannski bara farið og sett niður karftölurnar eða gert eitthvað annað sniðugt seinnipartinn. Svo hefst hangsið, mér er ekki við bjargandi og ég hljóma svo eins og biluð plata þegar ég byrja að vorkenna mér ómennskuna og letina. Hmmff.
Ég klára sem sagt stærðfræðina 1. júní ef ég fell ekki, þá er sagan eftir og af því ég á miklu auðveldara með að sinna henni en hinu faginu verður nóg að mæta og skrifa nafnið sitt í prófinu. Ja, allavega næstum því.
Ég hef nú samt aðeins farið út fyrir dyrnar og meira að segja einu sinni farið og gefið á garðann með gömlu hjónunum, svo skrapp ég út með myndavélina einn daginn.


Þessar tvær eru mínar uppáhalds úr síðustu myndatöku.


En en þessum var smellt af á leiðinni austur.
Svo er það bara beint í bæinn fljótlega upp úr mánaðamótum, ég ætlaði að vera til 12. eða 13. júní en mér sýnist stefna í að ég þurfi að fara fyrr til að berja saman eina söguritgerð og svo byrjar vinnan 14. júní. Ég hangi svo í henni út júlí og fæ viku fri áður en skólinn byrjar aftur. Svona er að vera námsmaður , maður verður að taka sumarvinnu !
Kosturinn við þetta hangs í bænum er að það er nokkuð öruggt að ég heimta ferð í blóðbergstínslu með konunni á Nesinu. Ef hún verður ekki búin að gleyma því að ég er til, svona er að hafa aldrei tíma til að tala við nokkurn nema tölvuna sína.
1 ummæli:
Sko:
Hugskeytið sem þér var sent í morgun hefur auðsjáanlega skilað sér. Var nebbnilega á leiðinni að hringja í þig og dobbla í garðaskoðunarferð í kvöld. En mér sýnist á öllu hér að þú komist ekki oní miðbæ Reykjavíkur fyrir kvöldið!
Og blóðbergstínslan er ekki gleymd - skoðum helgarnar kringum fyrsta júlí. En pössum okkur kannski að vera ekki að tína á skotæfingasvæði aftur.... hehe. Og nú þarf ég að tala við vinnutölvuna... kkv
S
Skrifa ummæli