2. júní 2010

Algebra og prósentusamlagning

Ég þurfti ekki að fara í stærðfræði tvöhundruð og eitthvað til að læra að leggja saman náttúrulegar tölur. Það lærði ég í grunnskóla og svo æfði ég mig í því í morgun. Dæmi 3=6%, +dæmi 4= 6% + dæmi 13 =15% og svo koll af kolli. Það var sama hvað ég lagði oft saman, ég fékk aldrei nema 46% út úr samlagningunni. Ég þurfit að fá 50% en svona er að hanga í öllu öðru en náminum, Það munaði einu dæmi og ef ég hefði náð að læra deilingu margliðna hefði þetta sloppið. Það er þó huggun í harmi að kjóllinn sem ég er að prjóna svona annað slagið verður ,,aldeilis fínn" eins og Flubbinn væri vís með að orða það og tölvuleikirnir skot ganga. Ekki amalegt það. Svo má alltaf vona að ég hafi náð 4% í öllum dæmunum sem ég byrjaði á en vissi ekki hvernig átti að fullreikna.
Einhverntíma las ég langan brandara um Finnan sem velti þvi fyrir sér hvort hann ætti að fara í Vetrarstríði, mér dettur hann stundum í hug og ekki síst núna þegar ég les um stríðsárin og stríð Finna við stórveldið í austri. Allavega, Finninn velti því fyrir sér hvort hann ætti að fara í stríðið og berjast. ,,Ef ég fer" sagði hann, ,,getur tvennt gerst. Annað hvort fell ég eða ég lifi af. Nú ef ég lifi af kem ég heim aftur og það er ekki meira um það en ef ég fell getur tvennt gerst, ég verð brenndur eða grafinn. Ef ég verð brenndur verður ekki meira um það en ef ég verð grafinn getur tvennt gerst, upp af leiðinu mínu vex tré eða þar vex ekki tré. Ef þar vex ekki tré er ekki meira um það að segja en ef þar vex tré getur tvennt gerst. Tréð verður höggvið niður eða það verður ekki höggvið niður. Ef tréð verður ekki höggvið er ekki meira um það en ef það verður höggvið getur tvennt gerst. Tréð verður notað í dagblaðapappir eða tréð verður notað í klósettpappír. Ef tréð verður notað í dagblaðapappír er ekki meira um það en ef það verður notað í klósettpappír getur tvennt gerst annað hvort fer pappírinn á karla- eða kvennaklósettið. Ef pappírinn fer á karlaklósettið er ekki meira um það en ef hann fer á kvennaklósettið... ég held ég fari bara í Vetrarstríðið"
Þetta er auðvitað ferlega vitlaus brandari og ég er ekki viss um að ég muni hann alveg 100%, ég er meira svona í 50%unum núna eða bara 46 en ég set mig í spor Finnans og hugsa ,,ef ég fer í próf getur tvennt gerst. Annað hvort fell ég eða fell ekki (aha, alveg eins og Finninn sagði) ef ég fell ekki er ekki meira um það en ef ég fell tek ég eitt prófið enn" Ég þarf ekki að spá í brennslu eða greftrun þó ég falli. Hvað er maður svo að kvarta!

Það er ákveði að keyra heim í næstu viku og sennilega norður fyrir. Flubbinn kemur austur á morgun og hún gæti þurft að vera með námskeið norður í landi eftir viku svo við dólum okkur þá leiðina og gistum eina nótt einhverstaðar. Ég nota tímann og hlusta á sögu og skrifa ritgerð.

Engin ummæli: