16. apríl 2010
Eggjakökur
Ég var að lesa athugasemdir á blogginu hennar Jennýar Önnu og ég verð að segja eins og er að mér er svo brugði að ég legg ekki í að leggja þar orð í belg. Þar réttlætir fólk skrílslætin með því að nú eigi að gjalda líku líkt. Það sé í lagi, góðu lagi, að hræða og hrella börn þeirra Þorgerðar og Kristjáns af því þau verði bara jafn siðblind og foreldrarnir. Það sé hið besta mál að brjóta á friðhelgi heimilisins af því kúlulánapakkið og siðblindu krógarnir þeirra eigi ekkert gott skilið. Pakkið beri ábyrgð á því að fólk sé að missa íbúðirnar ofan af sér og börnunum og til að baka eggjaköku þarf að brjóta nokkur egg. Fyrir mína parta sé ég engan mun á siðblindu kúlulánahópanna og siðblindu þeirra sem nota svona rök.
Það hefur svo sem stundum heyrst að til að vinna stríð þurfi oft að slátra nokkrum saklausum borgurum, ætli við hérna gætum endað eins og fyrrum Júgóslavíu ríkin. Við mundum þá skiptast í útrásar- og kúlulánapakkið og hin heilögu fórnarlömb.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli