15. apríl 2010

Animal hvað?°

Ég les, nei hlusta á Animal Farm annað slagið og undir lestrinum byrjar hugurinn ósjálfrátt að reika.
Hann reikar að skýrslu og bankahruni, efnahagshruni og hagfræði frjálshyggjunnar og ég fer að velta því fyrir mér hvaða persóna í í skýrslunni samsvari Napoleon eða Boxer. Hvaða þjóðfélagshópur sé eins og kindurnar, hver eins og Snowball og hvernig gengi að skrifa síðustu árin í íslensku þjóðlífi inn í þessa sögu. Ég á að vera með hugann við kommúnismann og Sovétríkin meðan ég hlusta en ég get bara ekki að því gert að mér finnst nútímasagan svo miklu meira spennandi viðfangsefni.
Á mælikvarða jarðfræðinnar er saga Íslands frá landnámi vart mælanleg en þessa dagana fáum við að upplifa óskrifaða stóratburði Íslandssögunnar og jarðfræðinnar. Einu sinni fyrir ekki svo löngu síðan stóð ég við lokuð landamæri Georgíu og Rússlands og horfði á brot af óskrifuðum kafla í mannkynssögunni og mér leið svipað. Kannski er þetta bilun en merkileg bilun samt og ég skil alveg facebookhópinn ,,Ég var fæddur þegar Eyjafjallajökull gaus"

Engin ummæli: