20. apríl 2010

Asninn

Ég var að ljúka við skilgreiningu á sjálfri mér, ég fann það út að ég væri eins og Benjamín í Animal Farml, kaldæðinn bölýsnismaður (asni). Jamm ég er ansi upptekin af þessari sögu núna enda var ég með allar spurningar réttar í fyrra krossaprófinu úr efninu og svo set ég allt sem ég heyri og sé í Animal Farm sögulegt samhengi. Bæði sjálfa mig og aðra.
Þessir eiginleikar eða brestir, sem er kannski rétt að kalla þá, blossuðu upp af álíka miklum krafti og eldsumbrotin undir Eyjafjallajökli þegar mér var boðið að ganga í hóp á Facebook. Hópinn sem hefur það að markmiði að aðstoða fólkið undir Eyjafjöllum eða Eyjafjallajökli öllu heldur. Ég er bara orðin hundleið á Facebook hópum og finnst fólk hópast í þá í stórum stíl til að sýna sig og sjá aðra. Aðallega sýna sig, sýna hvað við íslendingar erum nú kærleiksríkir og samúðarfullir og stöndum þétt saman þegar eitthvað bjátar á. Sem sagt, þegar við erum ekki önnum kafin við að reka hnífinn í bakið hvert á öðru, troða skóinn af náunganum og baktala hann erum við svo dásamleg.

Hjarðhegðun er dásamlegt fyrirbæri og mér verður hugsað til rollukórsins í Animal Farm. Já- ég sagði það, ég set allt í Animalfarmískt samhengi.

Bjargráðasjóður, Viðlagasjóður, Landbúnaðarráðuneyti og Bændasamtök Íslands eiga að koma að þvi að leysa vandamál bænda undir Eyjaföllum. Sjálfsagt er og verður þörf fyrir hjálparstarf þarna en samkvæmt minni reynslu af þvi að virkja sjálboðaliða, verður ekki nema brot af þessu fólki tilbúið til einhvers annars en skrá sig í hóp á Facebook.

Af öðrum og ánægjulegri málum er það að frétta að ég skreið á stærðfræðiprófinu um daginn og er steinhætt að undirbúa endurupptökupróf. Annar hlutinn í stærðfræðinn er svo miklu skemmtilegri en sá fyrri, ég verð sátt ef ég skríð líka upp úr enskuáfanganum og verð dauðfegin að skipta enskunni út fyrir sögu.
Svo labba ég daglega en er löngu hætt að nenna að skrifa það hja mér. Ég á ábyggilega eftir að sjá eftir því og kannski líka því að nenna ekki að lesa þennan pistil yfir og laga hann, ég nenni því bara ekki.
Mig langar í fleiri íslenskuáfanga í skólanum. Málfræði, setningafræði og eitthvað svona bráðnauðsynlegt sem ég er löngu búin að gleyma en þarf að rifja uppl

2 ummæli:

elina sagði...

Ég á fullt af góðum bókum um það málefni....

Hafrún sagði...

Mál- og setningafræði? Eða kaldhæðni og bölsýni?
Hvernig væri nú að ganga með mér hringinn í kringum Vifilstaðavatnið og ræða setningafræði.