15. febrúar 2010

Vetur konungur mættur aftur

Eftir nokkuð marga ljúfa daga þar sem hitamælirinn hefur hangið nokkrum gráðum ofan við frostmark og mild þokusúld hefur blekkt bæði tré og túlípana til að hefja vorkomuna er veturinn aftur búinn að herða tökin.

Ég kom frostbitin inn úr göngtúrnum í gærkveldi og lét 20 mínútna rölt duga. Hérna á suðvesturhorninu sleppum við þó vel miðað við aðra landshluta þar sem fengu úthlutað ofankomu, hvassviðri og snjóflóðum.

Fréttirnar af leitinni á Langjökli voru þó jákvæðar í öllu neikvæðnisástandinu hérna núna.

Í dag eins og svo oft áður þarf ég að bretta upp ermum og hætta þessu bloggbulli og lestri. Mér heyrist ég hljóma eins og biluð plata.

Engin ummæli: