Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um siðspillta Ísland, aðrir bloggarar s.s. Lára Hanna gera þessum hlutum góð skil á mannamálið.
Það má segja að ég hafi dregið hausinn upp úr sandinum um stund,horft á ástandið í þjóðfélaginu sólgleraugnalaust og það hafi leitt af sér streitu og þunglyndiseinkenni og þess vegna fagnaði ég innihaldslausum og yfirborðskenndum ,,fréttum" Fréttablaðsins í morgun. Aldrei þessu vant.
Viggó Mortensen ,,Ferðast um Vestfirði með kærustunni."
,,Ææ, þá er hann geng in út." Maður getur nú tárasta af minna enda maðurinn einn af mínum uppáhalds leikurum.
Þessi frábæri leikari borðaði þorsk, horfði á fótbolta og hélt sennilega með Ítalíu í boltanum! Borðaði vel og var eins og venjulegur maður segir vertinn í Þorpinu. ,,Hmm, og ég sem hélt að hann væri Aragorn holdi klæddur." Önnur vonbrigði!


Eins og óvelkomnir og óboðnir partýgestir smeygðu neikvæðar hugsanir sé inn, eða risu úr kistunni eins og Drakúla við sólarlag og ég velti því fyrir mér hvort veitingamenn og aðrir sem þjónusta ferðamenn eigi ekki að sýna viðskiptavinum sínum þá virðingu að ræða ekki um þá við fjölmiðla, já eða bara halda trúnað og sleppa slúðrinu- við alla.
Púkinn á öxlinni minntist líka á að ef þarna hefði verið á ferðinni frægur leikari með nafnið Vigga hefði fréttamaður hafi gífurlegan áhuga á hverju viðkomandi klæddist. Púkinn man nefnilega eftir frétt um konu í grænum sundbol í Veturbæjarlauginni.
Púkinn á öxlinni minntist líka á að ef þarna hefði verið á ferðinni frægur leikari með nafnið Vigga hefði fréttamaður hafi gífurlegan áhuga á hverju viðkomandi klæddist. Púkinn man nefnilega eftir frétt um konu í grænum sundbol í Veturbæjarlauginni.
Í þá frétt vantaði bara lýsingar frá sturtuverðinum.
Og frá vonbrigðum og sundbolum að helsta gleðiefni mínu í fréttum dagsins.
,,Rektor LHÍ stendur með Lindu í kjólamálinu"
Undir þessari fyrirsögn rifjar blaðamaður upp fyrir lesendum helstu þræðina í Stóra kjólamálinu þar sem þær Eva María, Ragnhildur Steinun, Linda Árnadóttir, RÚV og Birta Björnsdóttir leika aðalhlutverkin og bætir svo við upplýsingum um það síðasta í atburðarrásinni. Hann fræðir okkur þó ekkert um matarsmekk sögupersónanna. Því miður.
Í þessu máli hafa myndast tvær andstæðar fylkingar og deilumálið er það hvort kjólarnir sem Eva María og Ragnhildur Steinunn voru í á úrslitakvöldi Söngvakeppni sjónvarpsins í ár séu ljótir eða ekki ljótir. Eða var það ljótir eða fallegir?


Enginn hefur minnst á það hvort kjólarnir klæddu þær stöllur en ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að falleg flík sé ekki falleg á hverjum sem er og að glæsilegar konur séu betur settar í lopapeysu og gallabuxum en kjólum, litum og með hárgreiðslur sem ekki fara þeim.
Þó mér finnist sárlega vanta upplýsingar um hvort þessar konur kunni að meta þorskpiparsteikur er ég sannarlega glöð yfir því að við skulum hafa fleira að tala um en spillingu, vanhæfni og svik.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli