13. febrúar 2010

44/44

Í dag er ég búin að fá mér heilsubótargöngu 45x á 44 dögum. Ég fékk mér langa og notalega göngu fyrir 10 í morgun og rölti svo 20 mínútna hringinn minn klukkan 10 í kvöld.
Ef mér tekst að halda þessu áfram er ég bjartsýnin uppmáluð og trúi því staðfastlega að mér takist að ganga á Helgafellin með vorinu. Það verður þó að segjast eins og er að seturnar yfir skólabókum og vinnu fara jafn illa í vöðvafesturnar og setan við vinnuskrifborðið gerði.
Nú á ég samt auðveldara með að stjórna álaginu.

Svo velti ég því fyrir mér hvort ég á að breyta talningunni minn og telja 45/44 og svo koll af kolli en það verður of flókið svo ég held bara planinu um að hreyfa mig daglega og skrifa það niður svo ég freistist ekki til að svindla.


Eitt augnablik hvarflaði að mér að setja hollustu matarplan eldhússins upp á þessu opinbera formi en það var bara augnablik.

Nú ætla ég að snúa mér að Sínus og kósínus í nokkrar mínútur fyrir svefninn.







Þarna gekk ég einu sinni og það væri ljúft að geta gert svona nokkuð aftur.

Engin ummæli: