Þegar líður á göngutúrinn og morguninn er orðinn alsráðandi fer rólyndið á göngustígnum að víkja fyrir hlaupandi tvífætlingum. Boðar það ekki vorkomu?
Gigtveikur göngumaður notar morgunróna frekar til að hreyfa heilann og æfa sig að hugsa, notar þess vegna ekki ipod til að halda göngutakti. Morgunhugsanirnar snerust því miður þennan meira um spillta stjórnmálamenn og siðblinda bissnesmenn en lífsharmoníuna við sjóinn.
Það ætti að kenna mér að lesa ekki blöð og bloggpistla fyrr en eftir morgunmat.
Í stað þess að æfa mig í útreikningi horna og falla þennan morgun er ég búin að skanna, skima og þaullesa ýmis bloggskrif og blessað Fréttablaðið. Fréttablaðið er þunnur þrettándi en ég lærði þar tvö orð sem ég er að hugsa um að leggja á minnið, eða skrifa í minnisglompu og hafa í veskinu. (glompa þýðir reyndar skv. snara.is: op, hola, gat, rof á skýjum, glompa á skýjum, lofti, og er varla heppilegt að geyma í glompu það sem maður ætlar að muna. Reyndar er talað um að minnið sé glompótt svo sjálfsagt er ég að rugla saman orðum og ætla að geyma þetta í minniskompu.
Minniskompa skal það vera, ég á eina rauða sem stendur á PEACE COUNTRY SVITZERLAND og henni er haldið saman með grænni teygju. Ég þarf að hafa hana í veskinu og skrifa í hana orð sem ég safna.
Orðin tilfinninningaklám hef ég séð áður en ekki munað þegar ég, undanfarin tvö ár hef reynt að muna orð sem nær yfir ákveðna (hjarð)hegðun á netinu, aðallega þó á facebook. Þetta er það orð.
Tilfinningarúnk er annað orð sem ég rakst á í sömu grein og mér finnst það skýra sig sjálft. Fólk stundar þetta grimmt á facebook og víðar á veraldarvefnum og þetta er sprottið af svipaðri þörf og þörf perrana sem bera sig líkamlega fyrir framan aðra og fá út úr því svipað kikk. Reyndar eru viðbrögð margra þeirra sem verða vitni að tilfinningarúnki önnur en við kynferðislegu rúnki á almannafæri. Margir taka undir og mæra og lofa viðkomandi í hástert með hástemmdum lýsingarorðum og á endanum er athæfið orðið að hóptilfinningarúnki. Það er ábyggilega til orð yfir þetta sem lýsir athæfinu betur, ég man það bara ekki í augnablikinu og minniskompan er auð ennþá. Þessi hjarðtilfinningasjálfsfróun er grimmt stunduð á minningarsíðum á facebook.
Að öðrum orðum.
Bloggynja er orð sem ég rakst á góðri bloggsíðu og ég ætla að skrifa það hjá mér líka.
Eitthvað fleira sá ég merkilegt en meðan rigningin hvíslar dripp, dripp, dropp við gluggann hjá mér er akkúrat rétti tíminn til draga upp stærðfræðibókina.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli