Stolnar fjaðrir
Ég ákvað að skreyta mig með stolnum fjöðrum í dag og coperaði þetta þess vegna í heilu lagi af síðunni sem er linkað inn á þarna.
Þetta á bara eitthvað svo vel við.
(Keep It Simple)
Þegar lífið virðist óviðráðanlegt og ruglingslegt hentar best að beita einföldum aðferðum og þetta slagorð minnir okkur á að flækja málin ekki ómeðvitað með því að reyna að sjá fyrir allt það sem gæti farið úrskeiðis til að vera viðbúin því. Þegar við höfum það einfalt reynum við að taka hlutunum eins og þeir eru í stað þess að velta því fyrir okkur hvað, ef til vill og kannski gæti orðið, ef þetta eða hitt væri svona eða hinsegin.
Það minnir okkur á að flækja málin ekki frekar eða taka ekki meira að okkur en við getum ráðið við og að okkur gangi betur ef við einföldum markmið okkar. Að við getum slakað á, verið mildari við okkur sjálf og treyst því að ef við setjum annan fótinn fram fyrir hinn til skiptis komumst við á áfangastað. Einfaldlega skref fyrir skref.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli